Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Brim neitaði að borga andlega veikum sjómanni staðgengislaun – Áfrýjaði til Landsréttar

Guðmundur Kristjánsson í Brimi.
Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi.

Útgerðar­félagið Brim hefur áður brotið á réttindum andlega veiks sjómanns. Fyrr á þessu ári staðfesti Lands­réttur niður­stöðu héraðs­dóms í máli sjómanns sem taldi sig eiga inni stað­gengislaus hjá Brim eftir andleg veikindi.

Í kvöld­fréttum Rúv í gær var sýnt viðtal við sjómanninn Boga Theodór Ellertsson og eiginkonu hans, Þórhildi Helgu Þorleifs­dóttur. Lýstu þar hjónin því hvernig Bogi brotnaði niður eftir að hafa misst barnabarn sitt í fyrr og eftir skot­árásina á Blönduósi á þessu ári þar sem bestu vinir hans urðu fyrir árás manns, með þeim afleiðingum að konan lést og maðurinn særðist alvarlega. Bogi var í miðju túr er árásin á Blönduósi varð og áfallið var gríðarlegt en hann fékk undir eins tauga­áfall. Í viðtalinu furðuðu hjónin sig á viðbrögðum og vinnu­brögðum útgerðar­félagsins og töluðu um að forneskulegar hugmyndir um vinnustaða­menningu ríki víða í sjávar­útveginum á Íslandi. Brim sagði Boga upp eftir að hann óskaði eftir veikinda­leyfi.

Brim sendi frá sér yfir­lýsingu eftir kvöld­fréttirnar þar sem fyrir­tækið sagðist harma að „verk­ferlar félagsins hafi brugðist“ í máli Boga. Hét fyrir­tækið því að endur­skoða verkferla félagsins í svipuðum aðstæðum.

Ekki einsdæmi

Mál Boga er ekki einsdæmi hjá Brim en fyrr á þessu ári staðfesti Lands­réttur niður­stöðu héraðs­dóms í máli sjómanns sem taldi sig eiga inni stað­gengislaun hjá Brim eftir andleg veikindi sem hann glímdi við eftir túr hjá útgerðinni.

Héraðs­dómur Reykja­víkur hafði komist að þeirri niður­stöðu árið 2021 að sjómaðurinn hafi átt rétt á stað­gengis­launum. Brim áfrýjaði hins vegar dómnum til Lands­réttar á þeim forsendum að sjómaðurinn hafi sótt um þau laun of seint. Krafðist útgerða­fyrirtækið þess að það yrði sýknað af kröfum sjómannsins.

Í dómi Lands­réttar var málinu meðal annars lýst á eftir­farandi hátt:

„Stefnandi starfaði sem háseti hjá stefnda. Byggir hann á því að í veiðiferð[…]hafi hann veikst, en veiði­ferðin stóð yfir 26. febrúar 2019 til 4. mars sama ár. Stefnandi kveðst hafa komið óvinnufær í land og haft samband við B, heimilis­lækni sinn. Stefnandi höfðar mál þetta til  innheimtu á staðgengils­launum í tvo mánuði sem hann byggir á að stefnda beri að greiða honum vegna óvinnufærni stefnanda. Stefndi mótmælir því ekki að stefnandi hefði að öllu jöfnu á rétt til staðgengils­launa í tvo mánuði  ef  til  óvinnufærni kæmi. Stefndi hefur hins vegar ekki fallist á að greiða  stefnanda staðgengils­laun á þeirri forsendu að hvorki séu fyrir hendi form­skilyrði né efnisleg skilyrði fyrir rétti stefnanda til greiðslu umkrafinna launa.“

Lands­réttur komst að þeirri niður­stöðu að dómur Héraðs­dóms Reykja­víkur skildi standa og að Brim hf. skyldi gert að greiða sjómanninum 3.703.706 krónur með dráttar­vöxtum sem og 950.000 krónur í máls­kostnað vegna máls­meðferðar við héraðs­dóminn og 1.250.000 krónur í máls­kostnað fyrir Lands­rétti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis