Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Ruslahaugur í Argentínu talinn upprunastaður hantaveirusmits á skemmtiferðaskipi

„Sjúklingur núll“ fór á urðunar­staðinn til að skoða sjaldgæfa fugla.

Ruslahaugurinn
Rusla­haug­ur­inn Rugl­a­haug­ur­inn nærri borg­inni Ushuaia Mynd: Diego O. Galeano / Shutterstock.com

Leo Schilperoord, hollenskur fugla­fræðingur, er talinn vera svokallaður „sjúklingur núll“ í banvænu hantaveiru-farsóttinni um borð í skemmtiferða­skipinu MV Hondius, sem sagt sá sem fyrst smitaðist.

Leo, sem var sjötugur, fór um borð í skipið ásamt eiginkonu sinni, Mirjam Schilperoord, eftir ferð þeirra um Suður-Ameríku. Talið er að þau hafi smitast eftir heimsókn á urðunar­stað skammt frá borginni Ushuaia í Argentínu þann 27. mars.

Svæðið, sem er rétt fyrir utan borgina Ushuaia, sem kölluð er „endi heimsins“, er vinsælt meðal fuglaskoðara vegna sjaldgæfra fugla­tegunda sem halda þar til. Argentínsk yfirvöld telja hjónin hafa smitast af Andes-afbrigði hantaveiru eftir snertingu við sýkt nagdýr á rusla­haugnum.

Fjórum dögum síðar, 1. apríl, lögðu þau af stað með MV Hondius frá Ushuaia ásamt 112 öðrum farþegum. Þann 6. apríl fór Leo að finna fyrir hita, höfuðverk, maga­verkjum og niður­gangi. Hann lést um borð fimm dögum síðar.

Lík hans var áfram í skipinu þar til það lagðist að bryggju á Saint Helena þann 24. apríl.

Mirjam ferðaðist með lík eigin­manns síns til Suður-Afríku, en veiktist einnig skömmu síðar. Hún var komin um borð í flugvél frá Jóhannesar­borg til Amsterdam þegar henni var neitað um ferða­leyfi vegna heilsu­fars hennar. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést daginn eftir, 26. apríl.

Þriðji farþeginn sem er látinn er þýskur ríkis­borgari.

Hjónin voru frá þorpinu Haulerwijk í Hollandi og voru minnst í minningar­greinum í staðar­blaði heima­bæjarins. Þar stóð meðal annars: „Eins og fuglar á flugi. Við munum sakna ykkar og sagnanna ykkar.“

Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunin greindi frá því í dag að staðfest hantaveirusmit tengd skipinu væru nú orðin sex talsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu