Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

50 milljarða vanáætlun Samgöngusáttmála – Borgarstjóri og meirihlutinn krafin um skýringu

Marta Guðjónsdóttir
Marta Guð­jóns­dóttir Mynd: www.xd.is

Marta Guðjóns­dóttir, borgar­fulltrúi í Reykjavík, fór yfir Samgöngu­sáttmálann á laugardags­fundi Varðar sem haldinn var í Valhöll í dag . Borgar­stjórnar­flokkur Sjálfstæðis­flokksins lagði fram tillögu á borgar­stjórnar­fundi í gær að óskað væri eftir viðræðum við fleiri sveitar­félög sem að sátt­málanum standa um að endur­skoðunar­ákvæði yrði virkjað.

„Samgöngu­sáttmálinn kveður á um skipulag og fjár­mögnun á samgöngu­innviðum, þar með talið innviðum á almennings­samgöngum á höfuð­borgar­svæðinu til 15 ára (2019-2033).

Í ræðu Mörtu útskýrði hún forsögu sátt­málans, markmið hans, kostnaðar­liði og fjár­mögnun: „Heildar­fjármögnun sátt­málans kvað á um framkvæmdir upp á 120 milljarða. Um 50 milljörðum var ætlað að verja í Borgar­línu, álíka upphæð í stofn­brautir og afganginum í göngu- og hjóla­stíga, göngubrýr, undirgöng, stafræna umferðar­stýringu og „sértækar öryggis­aðgerðir.“

Um 60-70 manns voru á Morg­un­fundi Varðar. Aðsend/GL

Betri samgöngur annast framkvæmdir

Betri samgöngur var stofnað 2. október 2020 og er opinbert hluta­félag um uppbyggingu samgöngu­innviða á höfuð­borgar­svæðinu. Á heimasíðu fyrir­tækisins segir: „Ríkið, Reykja­víkurborg, Kópa­vogsbær, Hafnar­fjarðar­kaupstaður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnar­nesbær undir­rituðu sáttmála um samgöngu­framkvæmdir á höfuð­borgar­svæðinu 26. september 2019. Ákveðið var að framkvæmdirnar yrðu í höndum fyrir­tækis sem yrði stofnað í kringum þær. Ríkið og sveitar­félögin leggja til þrjá milljarða á ári og fyrir­tækinu er ætlað að fjármagna það sem eftir stendur. Annars vegar með þróun Keldna­landsins, sem ríkið leggur fyrir­tækinu til, og hins vegar með innheimtu flýti- og umferðar­gjalda, verði ákveðið að leggja þau á.“

Vanáætlun upp á 50 milljarða

Marta Guðjóns­dóttir sagði í ræðu sinni að þau sveitar­félög sem mælt hafa með því að endur­skoða sátt­málann færðu fyrir því tvenns rök. Þau benda á að upphafleg kostnaðar­áætlun sátt­málans hafi verið mjög vanáætluð auk þess sem að alvarlegar vanefndir á framkvæmdum sátt­málans.

Hún útskýrði hvernig að í uppfærðri kostnaðar­áætlun frá Betri samgöngum hafi komið fram að tölulegur heildar­kostnaðurinn hafi hækkað úr 120 milljörðum í 170 milljarða eða um 50 milljarða.

Marta sundur­liðaði vanáætlun helstu framkvæmda:

  • Mislæg gatnamót á Sæbraut höfðu breyst í Sæbrautar­stokk sem þar með hækkaði úr 2,2 milljörðum í 17,7 milljarða.
  • Kostnaðar­áætlun vegna tengingar Arnar­nesvegar við Breið­holtsbraut hafði hækkað úr 1,6 milljarði í 4,9, milljarða.
  • Miklubrautar­stokkur fór úr 21.8 milljarði og var kominn upp í 27,1 milljarð.
  • Fyrsti áfangi Borgar­línu úr 17.1. milljarði í 28.1.milljarða.

Þá sagði hún: „Það sem ekki síst vekur athygli mína við þessa uppfærðu kostnaðar­liði eru kostnaðar­liðir hinna sex áfanga Borgar­línu. Samkvæmt uppfærðum kostnaðar­liðum Betri samgangna hækkar fyrsti áfanginn lang, lang mest, úr 17,1 milljarði í 28,1 milljarð, eða um tæp 65 prósent. Aðrir áfangar Borgar­línunnar hækka hins vegar miklu minna, hlutfalls­lega, áfangar tvö og þrjú hækka til dæmis ekki nema um 24 prósent, enda er mun lengra í þær framkvæmdir.“

Hún sagðist hafa spurst fyrir um hina uppfærðu kostnaðar­áætlun og að fátt hafi verið um svör: „Ég meðal annars krafði borgar­stjóra og borgar­fulltrúa meirihlutans um skýringu á þessu, í ræðu minni í borgar­stjórn og ekkert þeirra gat gefið viðunandi skýringu. Þá datt mér í hug að uppfæra sjálf, uppfærslu Betri samgangna, og gera ráð fyrir að kostnaðar­liðir áfanga tvö, þrjú, fjögur, fimm og sex, hækkuðu hlutfalls­lega á við fyrsta áfanga, eða um tæp 65 prósent. Og þá kemur í ljós að sameiginlegur kostnaður við alla sex áfanga Borgar­línu fer ekki úr 49.6 milljörðum í 68,6 milljarða, eins og Betri samgöngur gera ráð fyrir, heldur úr 49,6 milljörðum í 81.7 milljarða. Uppfærður kostnaður Borgar­línu
myndi með öðrum orðum hækka um rúma 13 milljarða. Uppfærður heildar­kostnaður sátt­málans færi þá ekki í 170 milljarða, heldur í 183 milljarða.“

Marta Guð­jóns­dóttir á laug­ar­dags­fundi Varðar í Valhöll í morgun. Aðsend/GL

Ekki er öll sagan sögð

Marta Guðjóns­dóttir benti jafnframt á að: „Inn í þessari áætlun Betri samgangna er hvergi gert ráð fyrir kaupum á öllum þessum „hágæða, fram­úrskarandi, lúxus, grænu og umhverfis­vænu“ vögnum Borgar­línunnar. Það er heldur hvergi gert ráð fyrir öllum þessum stór­glæsilegu stoppistöðvum og skipti­stöðvum Borgar­línunnar í þessum kostnaði. Betri samgöngur eiga eflaust eftir að koma með einhverja skýringu á þessu. En við eigum þá líka eftir að meta það hversu sann­færandi þær skýringar verða.“

Vanefndir á sáttmálanum

„Samkvæmt sátt­málanum átti að flýta tíu framkvæmdum en þrjár lykil­framkvæmdir voru þó settar í algjöran forgang. Reykja­víkurborg átti strax að skipta út úreltum, gömlum
klukku-umferðar­ljósum, fyrir snjall­ljósa­stýringu. Reykja­víkurborg átti að ljúka við mislæg gatnamót Bústaðar­vegar og Reykja­nesbrautar árið 2021, og Reykjavík átti að tengja Arnar­nesveg við Breið­holtsbraut árið 2021. Nú, árið 2023, hefur enn ekki verið hafist handa við þessar framkvæmdir,“ benti Marta á í ræðu sinni.

„Ekkert bólar á nýjustu tækni í ljósa­stýringum enda vilja borgar­yfirvöld ekki standa við þann hluta samningins. Borgar­yfirvöld og Betri samgöngur leyfa sér að halda því fram að ekkert hafi verið staðfest um yfirburði tölvu­stýrðra ljósa sem senda þó stöðugar upplýsingar sín á milli, auka umferðar­flæði til muna og flokka og safna stöðugt upplýsingum í mikil­vægan umferðar­gagnagrunn. Þetta eru því fáheyrðar yfir­lýsingar í ljósi þess að slík ljós er löngu komin í notkun í flestum stór­borgum Evrópu. Samkvæmt skýrslu Samtaka iðnaðarins er áætlaður stofn­kostnaður af snjall­stýrðum ljósum í borginni um 1,5 milljarðar króna (miðað við verðlag 2019). Áætlaður ávinningur af slíkum ljósum er talinn vera um 15% tíma­sparnaður fyrir fólksbíla, 50% minni biðtími ökutækja í biðröðum og 20% meira flæði almennings­samgangna. Það er mat Samtaka iðnaðarins að 15% minni umferðar­tafir í höfuð­borginni, með snjall­ljósa­stýringu, muni skila um 80 milljörðum í ábata fyrir fyrirtæki og heimili á líftíma fjár­festingarinnar. Eru þá ótaldir aðrir ábata­þættir á við mun minni loft­mengun, styttri viðbragðs­tíma fyrir viðbragðs­aðila og sparnað í öðrum aksturs­kostnaði. Það er hins vegar ekki að sjá að borgar­stjórnar­meirihlutinn hafi áhuga á því að færa samfélagi sínu 80 milljarða ábata fyrir einn og hálfan milljarð króna. Frekar vilja þau ganga á bak orða sinna og brjóta samninga, og ekki í fyrsta sinn,“ benti Marta Guðjóns­dóttir á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim