Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kærasti Söndru Bullock er látinn – Lýst sem mjög þolinmóðum dýrlingi

Bryan og Sandra
Bryan og Sandra Mynd: Trausti Hafsteinsson

Kærasti Söndru Bullock, til átta ára, Bryan Randall, er látinn.

Bryan lést eftir þriggja ára baráttu við tauga­sjúkdóminn ALS, stundum kallaður Lou Gehrig´s Disease. Hann var 57 ára gamall.

„Það er með mikilli sorg, að við deilum með ykkur að þann 5. ágúst, lést Bryan Randall á friðsælan hátt, eftir þriggja ára baráttu við ALS,“ sagði fjöl­skylda hans í tilkynningu. „Bryan kaus snemma að halda baráttu sinni við ALS leyndri og við sem önnuðumst hann gerðum okkar besta til að verða við beiðni hans. Við erum gríðar­lega þakklát þeim óþreytandi læknum sem fóru með okkur um landslag þessa sjúkdóms með okkur og þeim ótrúlegu hjúkrunar­fræðingum sem urðu herbergis­félagar okkar en þau fórnuðu oft eigin fjöl­skyldum til að vera með okkar. “

Fjöl­skylda Bryans óskaði eftir frið svo þau gætu „syrgt og sætt sig við þann ómöguleika að geta kvatt Bryan.“

Sandra, 59 ára, var fyrst bendluð við Bryan árið 2015, stuttu eftir að hún hafði ráðið hann til að ljósmynda afmælis­veislu fimm ára sonar hennar. Síðar sama ár, sagði heimild E! News að Bryan hefði „formlega flutt inn“ með Miss Congeniality stjörnunni, eftir að hún ættleiddi seinna barn sitt, dótturina Lailu.

„Þegar ég hitti hann, en við vorum ekki búin að vera saman það lengi, sagði ég „Mannstu þegar þú skrifaðir undir þagmælsku­skjalið þegar þú ljós­myndaðir son minn?“,“ rifjaði Sandra upp er hún kom fram í spjall­þættinum Red Table Talk árið 2021. „Þú veist að það er enn í gildi … því ég er að koma heim með barn þegar ég kem aftur frá Toronto“.“

Hún útskýrði hvernig lista­maðurinn hefði haldið sig algjör­lega fyrir utan sviðs­ljósið áður en þau byrjuðu samband sitt og tók fram að „allt líf hans fór á útopnu vegna mín.“ Sandra bætti við: „Hann var svo ánægður en hann var hræddur. Ég er jarðýta. Líf mitt var þá þegar á fullu stími og þarna var þessi fallega manneskja sem hafði engan áhuga á því sem fylgdi mínu lífi en var akkurat rétta manneskjan til þess að vera í því.“

Þegar Sandra var beðin um að lýsa kærastanum sagði hún Bryan vera „mjög þolinmóður“ og „dýrlingur“. Sagði hún ennfremur að Bryan hefði „þróast á stigi sem er ekki mennskt“ og að hann hefði fljótt orðið föðurímynd fyrir Louis, 13 ára og Lailu, 11 ára.

E! News sagði fréttina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt