Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ómar birti vísu sem hann samdi um Sigmund Davíð: „Bar við tímaskorti, enda ómissandi“

Ómar Ragnarsson segir orðræðuna á Alþingi um hið meinta málþóf Pírata vegna útlendinga­frumvarps Dómsmála­ráðherra, minna á orðræðuna er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fór ekki til Parísar í kjölfar hryðju­verka sem þar voru framin.

Í nýrri færslu á bloggsíðu sinni, skrifar skemmtikrafturinn og fyrrum frétta­maðurinn Ómar Ragnarsson, færslu við frétt Mbl.is um orðræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar á Alþingi í gær. Segir Ómar að þetta minni á það þegar Sigmundur, sem þá var forsætis­ráðherra, neitaði fyrir átta árum að fara til Parísar eins og margir aðrir þjóðar­leiðtogar gerðu, til að votta Frökkum samúð vegna hryðju­verka sem þar voru nýafstaðin. Birti Ómar svo frumsamda vísu sem hann samdi fyrir átta árum. Færsluna má lesa hér að neðan:

„Minnir á orðræðuna þegar Sigmundur fór ekki til Parísar.
Yfir­bragðið á umræðunni í Alþingi, sem greint er frá í viðtengdri frétt á mbl.is, um viðveru eða öllu heldur fjarveru ríkis­stjórnarinnar, minnir dálítið á það, þegar þjóðar­leiðtogar heims flykktust til Parísar fyrir átta árum til þess að sýna Frökkum samhug eftir mikil hryðju­verk í París í höfuð­stöðvum blaðsins Charlie Hebdu.

Íslendingum stóð til boða að senda okkar mann, en þáverandi forsætis­ráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sá sér ekki fært að fara og bar við tíma­skorti, enda ómissandi og önnum kafinn hér heima.

Þá varð þessi vísa til:

Forystu Íslands féllust hendur;

til Frakk­landi var því enginn sendur.

Héðan fór enginn yfir hafið,

því enginn er betri´en Sigmundur Davíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim