Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Tíu ára drengur fórnaði lífi sínu er þrjú börn féllu í gegnum ís: „Við erum öll enn í sjokki“

Blessuð sé minning þessarar hetju.
Blessuð sé minn­ing þess­arar hetju. Mynd: Facebook-skjáskot

Ungur drengur lést hetju­dauða er hann reyndi að bjarga þremur öðrum krökkum sem féllu í ísilagt vatn. Einum dreng var bjargað en hin börnin létust öll.

Mannlíf sagði frá harm­leiknum sem varð í Solihull í Englandi í vikunni. Fjórir krakkar féllu þá í ísilagt vatn en þrír þeirra létust en en viðbragðs­aðilum tókst að blása lífi í einn þeirra en hann er enn á gjörgæslu.

Sjá einnig: Þrír ungir drengir drukknuðu í ísilögðu vatni: „Fjöl­skyldurnar eru gjör­samlega niður­brotnar“

Hinn 10 ára Jack Johnson skutlaði sér í ískalt vatnið, án þess að hugsa um eigin heilsu, eftir að hann heyrði óp frá börnunum þremur sem fallið höfðu í vatnið.

Blessuð sé minn­ing þess­arar hetju.

Samkvæmt tilkynningu frá fjöl­skyldu drengsins kostaði hetju­skapurinn hann lífið.

Í vöku sem haldin var fyrir börnin sem dóu klöppuðu íbúar Solihull, nærri Birmingham, fyrir viðbragðs­aðilunum sem gerðu allt sem þeir gátu til að bjarga drengjunum en einn þeirra, lögreglu­þjónn, var fluttur á sjúkrahús með ofkælingu en hann hafði kýlt gat á ísilagt vatnið með berum hnúum. Þá var klappað fyrir slökkviliðs­mönnum sem tóku þátt í björgunar­aðgerðunum er þeir vottuðu fórnar­lömbunum virðingu sína með því að leggja blómvendi við bráða­byggða helgidóm þar sem fólk hefur lagt bréf og blómvendi. Í einu bréfi slökkviliðs­mannanna stóð „Hvílið í friði strákar.“

Slökkvi­liðs­menn­irnir vott­uðu drengj­unum virð­ingu sína.

Samkvæmt The Mirror eru dren­girnir þrír sem fyrst féllu í vatnið allir úr sömu fjöl­skyldunni. Frænka hetjunnar Jack, Charlotte McIlmurray skrifaði á netinu: „10 ára drengurinn er frændi minn. Hann sá einn fara í gegnum ísinn og hljóp til bjargar. Bænir okkar og hugsanir fara til hinnar fjöl­skyldunnar. Við erum algjör­lega brotin yfir þessu. Það að hann skyldi deyja við að reyna að bjarga þremur drengjum sem hann þekkti ekkert, lýsir honum fullkomlega. Hann var stórkost­legur.“

Fjöl­margir vott­uðu drengj­unum virð­ingu sína.

Jack var nemandi í St. Anthony´s Roman Catholic grunn­skólanum í nágranna­bænum Kingshurst. Skólinn var lokaðu í gær. Formaður bæjar­stjórnarinnar Marcus Brain sagði: „Eitt af börnum okkar er látið. Ég hef talað við fjöl­skylduna. Starfs­fólkið er algjör­lega miður sín. Drengurinn var yndis­legur. Allir eru eyði­lagðir. Við erum öll enn í sjokki.“

Frá björg­un­ar­að­gerð­unum.

Slökkviliðisstjórinn Richard Stanton sagði að þessi harm­leikur væri sterk áminning um hættur opinna vatna. „Frosin vötn, tjarnir, síki og lón geta verið fallega á að líta en geta einnig verið bannvæn. Það er ekki til sterkari áminning en harm­leikurinn sem varð á sunnu­daginn. Við viljum biðja foreldra og umönnunar­aðila að minna börnin á þær hættur sem fylgja ísilögðum vötnum og af hverju þau verða að halda sig frá þeim. Vinsamlegast hjálpið okkur að koma í veg fyrir að nokkuð svona gerist aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“