Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þrír ungir drengir drukknuðu í ísilögðu vatni: „Fjölskyldurnar eru gjörsamlega niðurbrotnar“

Leitarflokkar voru að í alla nótt
Leit­ar­flokkar voru að í alla nótt Mynd: Joseph Walshe / SWNS

Þrír drengir, 8 ára, 10 ára og 11 ára eru látnir en lík þeirra voru dregin upp úr ísilögðu vatni í Solihull, Englandi í gær. Sex ára dreng var bjargað úr vatninu en hann berst nú fyrir lífi sínu.

Leit­ar­flokkur að störfum

Sorgar­tíðindin bárust í dag en leitar­flokkar höfðu leitað í vatninu í alla nótt í Babbs Mills garðinum í Kingshurst, þar sem slysið átti sér stað.

Fjögur börn voru dregin upp úr vatningu í gærkvöld, eftir að lögreglunni barst tilkynning um sex ungmenni í vatninu. Almenningur slóst í för með björgunar­sveitum við leit í vatninu í örvæntinga­fullri leit að börnunum.

Leitað var í vatn­inu í alla nótt

Í dag sagði lögreglu­stjóri West Midlands lögreglunnar, Richard Harris, að ekki hafi fleiri lýst eftir börnum en þeirra sem fundist hafa en leit í vatninu verði haldið áfram til að tryggja það að enginn hafi verið skilinn eftir. „Fjöl­skyldurnar eru gjör­samlega niður­brotnar,“ sagði Harris í dag. Sagði hann að lögreglan hefði útvegað fjöl­skyldum drengjanna, sem og skóla þeirra viðeigandi aðstoð.

Bætti hann við: „Í gær barst okkur mismun­andi upplýsingar um fjölda krakka í vatninu. Þær tölur passa ekki við fjölda þeirra sem við fundum í vatninu í gær. Við verðum að vera 100% viss um að enginn annar sé í vatninu. Það er mikilvægt að taka það sérstak­lega fram að það hefur enginn haft samband og tilkynnt að einhver sé týndur en þar til við erum 100% viss, munum við halda leit í vatninu áfram í dag.“

Lögreglu­stjórinn sagði að lögreglu­mennirnir hafi ætt í vatnið „án þess að huga að eigin heilsu,“ og sagði að einn þeirra hefði ofkælst eftir að hafa reynt að kýla í gegnum ísinn.

Harris neitaði að svara því hvort einhver full­orðinn hafi verið á ísnum með börnunum er harm­leikurinn varð en tók fram að engin sakamála­rannsókn væri í gangi varðandi máið.

Í tilkynningu lögreglunnar í morgun sagði: „Þrír drengir hafa því miður látist eftir að hafa dottið í vatnið í Babbs Mills garðinum í Solihull í gærkvöld. Dren­girnir, 12 ára, 11 ára og 8 ára voru fluttir með hraði á spítala eftir að þeim var bjargað úr vatninu. Því miður bar endur­lífgunar­tilraunirnar ekki árangur og er hugur okkar hjá fjöl­skyldum og vinum þeirra á þessari hörmulegu stundu. Við munum bjóða þeim eins mikla sálfræði­lega hjálp og mögulegt er. Fjórði drengurinn, sex ára gamall, er enn í lífs­hættulegu ástandi á spítala.“

Er talið að dren­girnir hafi verið að leika sér á ísnum er hann brast.

Fréttin var fengin frá The Mirror. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum