Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kári snuprar Samherja

Kári. (Mynd: Art Bicnick.)
Kári. (Mynd: Art Bicnick.)

Kári Stef­ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða­greiningar, fór á kostum í ræðu sinni á Sjáoarnum síkáta,  sjómanna­deginum í Grindavík. Kári er vanur að láta hvína í tálknum þegar honum hentar. Að þessu sinni gerði hann að umtals­efni þau kjör sjómanna að verða bókhaldstrikkum útgerðarinnar að bráð og láta hlunnfara sig. „Með því að hýrudraga þá með flóknum bókhaldstrikkum, til dæmis með því að eiga félög í útlöndum sem þau selja aflann á lágu verði sem svo áfram­selja hann á háu verði …“, segir í ræðu Kára sem vefmiðillinn Vísir endur­birtir.

Ljóst má vera að þarna er hann meðal annars að vísa til ásakana á hendur Samherja sem liggur undir því ámæli Ríkis­útvarpsins og Seðla­bankans að hafa falsað fiskverð og skert þannig kjör sjómanna sinna. Kári segist ekki vilja leggja mat á sannleiks­gildi frásagna um svikin en segir sjómenn einfald­lega ekki eiga skilið að svona sé talað um atvinnu­greinina þeirra.

Svo hvetur hann sjómenn til uppreisnar.

„Það er kominn tími á sjómanna­byltingu í íslensku samfélagi. Þið verðið að skipuleggja ykkur og hefja kraft­mikla baráttu. Þið verðið að kasta blöðrum fullum af rauðri málingu í þær stofnanir sem standa í vegi ykkar annað hvort symbólískt eða raun­verulega …,“ segir Kári.

Hætt er við að ræða Kára hafi komið illa við Þorstein Má Baldvinsson og aðra Samherja­menn sem meðal annars eiga útgerðar­fyrirtæki í Grindavík þar sem eldmessan var var flutt. Lokaorðin voru sláandi brýning. „Ef þið gerið þetta ekki verður ykkar ekki einu sinni minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki. Ykkar verður einfald­lega ekki minnst,“ …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Slúður