Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hættuleg lyf, ris rafbílanna og horfnir Íslendingar

Það kennir ýmissa grasa í helgar­blaðinu Mannlífi. Við segjum frá áhyggjum foreldra trans barna og ungmenna en óvissa ríkir um framtíð trans teymis BUGL, sem er nauðsynleg stoð fyrir krakka sem glíma við erfiðar áskoranir þegar kynþroskinn knýr dyra.

Nolotil er vinsælt verkjalyf á Spáni, sem er ávísað á heilsu­gæslu­stöðvum og sjúkra­húsum, og jafnvel hægt að nálgast án lyfseðils. Vísbendingar eru um að hættan á alvarlegum auka­verkunum sé mismikil milli einstaklinga, mögulega vegna erfða, og hefur ferða­mönnum verið ráðið frá því að taka lyfið.

Meira var selt af rafbílum en bensín- og dísil­bílum í janúar sl. Neytendur geta valið milli 23 tegunda frá 15 fram­leiðendum en bílarnir kosta 3 til 13,4 milljónir króna. Bíla­umboðin segja margt skýra aukna sölu; m.a. aukið framboð, ívilnanir stjórn­valda, rekstrar­hagkvæmni og umhverfis­legur ávinningur.

Forvalið fyrir forseta­kosningarnar í Banda­ríkjunum sem fara fram í nóvember nk. er hafið. Pete Buttigieg leiddi forseta­efni demókrata í Iowa með minnsta mögulega mun en á hæla hans kom hinn róttæki öldungur Bernie Sanders. Þrátt fyrir slakt gengi Joe Biden veðja margir stjórnmála­spekingar enn á að hann hreppi útnefninguna en línur munu væntanlega skýrast mjög 3. mars, þegar kosið verður um þriðjung kjörmanna.

120 manns­hvörf hafa orðið á Íslandi frá 1945. Þau kveikja bæði áhuga og samkennd meðal íslensku þjóðarinnar, enda íbúar fáir, sambýlið þétt og allir þekkja alla eða tengjast með einhverjum hætti. Mannlíf ræddi við Runólf Þórhallsson, formann kennsla­nefndar, og fer yfir nokkur sérstæð manns­hvörf.

Borið hefur á því að fólk af asískum uppruna verði fyrir aðkasti og áreiti á Íslandi í kjölfar þess að kóróna­veiran 2019-nCoV greindist fyrst í Wuhan í Kína. Brynjar Steinn Gylfason og Donna Cruz, sem bæði eiga ættir að rekja til Filippseyja, eru meðal þeirra sem tekið hafa upp málið á samfélags­miðlum.

Lestu Mannlíf á man.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim