Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Arndís skorar á dómsmálaráðherra að herða enn útlendingalög: „Glæpir og morð eru daglegt brauð“

„Þessir efnahags­flóttamenn fá 4ra ára viðbótar­vernd og er ásókn þeirra orðin slík að þeir eru orðnir fjölmennari en Úkraínu­fólk sem lifir við alvarleg stríðs­átök og okkur ber að taka vel á móti,“ skrifar Arndís Björns­dóttir, fyrr­verandi háskóla­kennari á Facebook.Arndís fagnar nýjum og hertum lögum um komu flótta­manna til Íslands sem Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra fékk samþykkt á Alþingi.

„Þakka þér eftir­fylgni þína og staðfestu við að koma loksins nýju útlendinga­lögunum í framkvæmd. Þau eru að vísu gloppótt og þarf að bæta úr því. Þetta er fyrsti áfanginn í þá átt að herða þessi lög enn frekar,“ skrifar Arndís.

Hún hefur alvarlegar athuga­semdir við stór­felldan innflutning á fólki frá Venesúela en fagnar því að íslendingar veiti Úkraínu­fólki skjól frá hörmungum stríðsins. 

„Það þarf ekki síður að taka til hendinni gagnvart Kærunefnd útlendinga­mála sem er farin að hleypa stjórn­laust inn í landið efnahags­flótta­mönnum frá Venesúela. Fólki sem auglýsir Ísland sem sæluríki og græðir vel á því. Þessir efnahags­flóttamenn fá 4ra ára viðbótar­vernd og er ásókn þeirra orðin slík að þeir eru orðnir fjölmennari en Úkraínu­fólk sem lifir við alvarleg stríðs­átök og okkur ber að taka vel á móti,“ skrifar hún.

Ákveðinn hluti fólks svífst einskis

Hún telur að Íslendingar hafi enga burði til að taka við allt að 6000 flótta­mönnum á ári. „Ísland er örþjóð með 360-370 þúsund Íslendinga og ræður ekki fjárhags­lega né á annan hátt við að fá 6.000 hælis­leitendur á ári. Það er okkur lífs­nauðsynlegt að herða hælis­leitenda­lögin miklu meira og líta til vondrar reynslu annarra þjóða og þá sérstak­lega til Norður­landanna þar sem óöld, glæpir og morð eru daglegt brauð“.Arndís vonast til þess að enn hertari lög um útlendinga verði tekin upp á næstunni. Hún segir sjónarmið sín kosta það að hún verði fyrir árásum frá fólki sem svífist einskis.„Vonandi tekur þú, Jón, upp þráðinn aftur á næsta haust­þingi og kemur hertari útlendinga­lögum í gegnum þingið. Sem fylgjandi strangra útlendinga­laga eins og flestallir vilja hef ég fengið yfir mig enda­lausar bölbænir og svívirðingar og gríðar­lega illgjörn og ljót orð svo og hótanir. Það er ákveðinn hópur af fólki sem svífst einskis í formælingum sínum og heift,“ skrifar Arndís.Pistill Arndísar í heild sinni:Til Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra!Fyrst vil ég þakka þér eftir­fylgni þína og staðfestu við að koma loksins nýju útlendinga­lögunum í framkvæmd. Þau eru að vísu gloppótt og þarf að bæta úr því. Þetta er fyrsti áfanginn í þá átt að herða þessi lög enn frekar.Það þarf ekki síður að taka til hendinni gagnvart Kærunefnd útlendinga­mála sem er farin að hleypa stjórn­laust inn í landið efnahags­flótta­mönnum frá Venesúela. Fólki sem auglýsir Ísland sem sæluríki og græðir vel á því. Þessir efnahags­flóttamenn fá 4ra ára viðbótar­vernd og er ásókn þeirra orðin slík að þeir eru orðnir fjölmennari en Úkraínu­fólk sem lifir við alvarleg stríðs­átök og okkur ber að taka vel á móti.Þennan ágang frá Venesúela verður að stöðva og það er meira en nóg fyrir íslenska þjóð að taka á móti Úkraínu­fólkinu.Ísland er örþjóð með 360-370 þúsund Íslendinga og ræður ekki fjárhags­lega né á annan hátt við að fá 6.000 hælis­leitendur á ári.Það er okkur lífs­nauðsynlegt að herða hælis­leitenda­lögin miklu meira og líta til vondrar reynslu annarra þjóða og þá sérstak­lega til Norður­landanna þar sem óöld, glæpir og morð eru daglegt brauð.Atvinnu­þátttaka hælis­leitenda í nágranna­löndum okkar er lítil og kosta þeir velferðar­kerfið ómælda fjármuni. Í Danmörku t.d. vinna ekki nema 3 af hverjum 10 konum í hópi innflytjenda úti, hinar 7 eru á bótum. Þessi lönd eru hætt að tala um tekjur af rekstri þjóð­félagsins, efna­hagurinn er í ólestri, einna mest í Svíþjóð þar sem allt er meira og minna í rúst.Vonandi tekur þú, Jón, upp þráðinn aftur á næsta haust­þingi og kemur hertari útlendinga­lögum í gegnum þingið. Sem fylgjandi strangra útlendinga­laga eins og flestallir vilja hef ég fengið yfir mig enda­lausar bölbænir og svívirðingar og gríðar­lega illgjörn og ljót orð svo og hótanir. Það er ákveðinn hópur af fólki sem svífst einskis í formælingum sínum og heift.Það verður að geta þess hér að Reykja­víkurborg gengur hart fram í að útvega hælis­leitendum húsnæði og ryðst borgin inná auglýsingar þar sem íbúðir eru auglýstar til leigu, býðst til að ábyrgjast tryggingarfé og leigu­greiðslur og er að yfirbjóða aðra sem vantar húsnæði. Þetta er til háborinnar skammar fyrir ríki og borg.Hvað er gert af hálfu ríkis, borgar og annarra sveitar­félaga fyrir Íslendinga í húsnæðis­vandræðum? EKKERT.Hvað er gert fyrir fátækt íslenskt fólk, fátæk íslensk börn, efnalitla eldri borgara? EKKERT.Í nóvember 2022 fóru 29 hælis­leitendur sem löngu voru búnir að fá endanlega synjun um dvalar­leyfi úr landi en þeir eru víst allir komnir aftur.Þeir munu nú vonandi þurfa að fara héðan án þess að geta komið til baka og byrjað á að sækja aftur um hæli eins og þeir hafa komist upp með að gera hingað til?Fólk fullyrðir margt í þessum málum, satt og ósatt. Því hefur verið haldið fram við mig að ríkið fái greidda ákveðna fjárhæð erlendis frá með sérhverjum hælis­leitanda.Því hefur ekki verið svarað frá hverjum né hver fjárhæðin er þegar ég hef spurt hreint út um þessar full­yrðingar.Mig langar því til að spyrja þig sem dómsmála­ráðherra hvort greidd sé ákveðin fjárhæð til íslenska ríkisins með hverjum hælis­leitanda og ef svo er/væri, hver sú fjárhæð er?Með kveðju og fyrirfram þökk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim