Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Hvernig einmana barn verður að ofur-sjálf­stæðum full­orðnum einstaklingi

Sterk út á við, einmana innra með sér
Sterk út á við, ein­mana innra með sér Mynd: Unsplash/Yanhao Fang

Ósýnilegu sárin

Sum börnin sem alast upp við það að finnast þau einmana sýnast oft sterkustu fullorðnu einstaklingarnir. Út á við virðast þau óbrjótanleg; þau eru sjálfstæð, ábyrg, hjálpsöm og fær um að tækla hvað sem er án þess að blikka auga. En á bak við þennan flotta skjöld býr oft á tíðum djúpstæð lífs­reynsla. Þegar þú lærir snemma í lífinu að „það er enginn að koma til að bjarga mér, svo ég verð að redda þessu sjálf(ur)“, breytist sjálfs­bjargar­viðleitni í lífstíl.

Krónískur einmana­leiki í æsku snýst nefnilega ekki alltaf um að vera líkamlega einn. Oft var fólk til staðar, en enginn sá þig raun­verulega. Enginn skildi þig, huggaði þig eða bjó til pláss fyrir það sem þér fannst. Samkvæmt greiningum á The Psychology Group fylgir þessi tilfinninga­lega einangrun fólki inn í fullorðins­árin þar sem tauga­kerfið festist hreinlega í neyðar­stigi, sem mótar sambönd þess á mjög skýran hátt.

Hér eru 7 dæmigerð merki þess að full­orðinn einstaklingur sé enn að berjast við einmana­leika sem innra barnið þróaði með sér:

Þú þróar með þér „ofur-sjálf­stæði“ (hyper-independence)

Þú lærðir snemma að það að þurfa á öðrum að halda leiddi nánast alltaf til vonbrigða. Þess vegna líður þér mun betur með að berjast í gegnum hlutina ein(n) og sérð það sem öruggari kost en að eiga á hættu að einhver bregðist þér.

Þú tengist of djúpt hverjum þeim sem „sér“ þig

Þegar þú hefur eytt stórum hluta æskunnar í að líða eins og þú sért ósýnileg(ur), getur örlítil athygli eða viðurkenning virkað eins og stórkostleg ást. Þetta gerir það að verkum að þú átt það til að fyllast mikilli hrifningu eða skuld­bindingu fljótt.

Þú efast stöðugt um hvort fólki standi raun­verulega á sama um þig

Jafnvel þegar þú ert í kringum fólk sem elskar þig einlæglega, er hluti af þér alltaf á verði. Þú bíður ómeðvitað eftir höfnuninni eða að vera yfirgefin, vegna þess að það er það ástand sem þú þekkir best úr fortíðinni.

Þú upplifir einmana­leika, jafnvel í margmenni

Einmana­leiki þinn snerist aldrei um skort á fólki í kringum þig. Hann snerist um skort á dýpri tengingu þá tilfinningu að enginn skildi raun­verulega hvernig þér leið eða hver þú varst í raun og veru.

Þú gerist hlustandinn, hjálp­arinn eða umönnunar­aðilinn

Þú lærðir að vera til staðar fyrir alla aðra. Í laumi vonaðir þú þó alltaf að einhver myndi taka eftir því að þú þurftir líka á stuðningi og hjálp að halda, en þú kunnir ekki að biðja um það.

Þú umberð tilfinninga­lega fjarlæg sambönd of lengi

Fjarlægð er eitthvað sem þú þekkir. Ef innra barnið þitt lærði að lifa af á algjörri tilfinningalegri lágmarks­getu, geta litlir molar af athygli (e. breadcrumbs) virkað eins og raun­veruleg tenging í þínum augum.

Þú veist ekki hvað þú átt að gera þegar einhver mætir raun­verulega fyrir þig

Heilbrigð, stöðug og einlæg ást getur valdið þér óþægindum. Þitt varnar­sinnaða sjálf lærði nefnilega að elta tengingu og berjast fyrir henni, en það kann ekki að slaka á og taka á móti henni.

Hvernig er hægt að losna við þessa tilfinningu?

Það sem flestir átta sig ekki á er að þegar þú upplifir erfið­leika í þínum samböndum í dag, ertu ekki að bregðast við manneskjunni sem stendur fyrir framan þig. Þú ert í raun enn að reyna að lækna einmana barnið hið innra í gegnum „fullorðins­búninginn.“ Þess vegna tengist þú of hratt, staldrar við of lengi, óttast fjarlægð eða átt erfitt með að treysta þeim sem ætla að vera um kyrrt.

Batinn hefst þegar þú hættir að yfirgefa sjálfa(n) þig. Þú þarft að syrgja það sem þú fékkst ekki í æsku, leyfa þér að finna tilfinningarnar sem þú þurftir að jarða og átta þig á því að þú þarft ekki lengur að elta ástina til þess að sanna að þú skiptir máli. Þú getur hreinlega ekki læknað það sem þú neitar þér um að finna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni