Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Starfsmaður Sælukots rekinn eftir undirskriftasöfnun: „Treysti mér ekki til að bera ábyrgð á þessu“

Leikskólinn Sælukot
Leik­skól­inn Sælukot

„Ég sagði upp vegna þess fyrst og fremst ég treysti mér ekki til þess að bera ábyrgð á þessu,“ segir fyrrum starfs­maður leik­skólans Sælukots í samtali við Mannlíf.

Mannlíf fjallaði um leik­skólann Sælukot á dögunum og hafa borist fjöldi ábendinga í kjölfar umfjölluninnar. Móðir barns sem var við leik­skólann sagði frá reynslu sinni eftir að grunur kom upp að barn hennar hefði lent í kynferðis­ofbeldi af hálfu starfs­manns við leik­skólann.

Þá greindi annar, tveggja leik­skólastjóra við Sælukot frá því að skýrsla frá barna­vernd hefði verið sýnd óviðkomandi aðilum, eða foreldrum í foreldra­ráði. Samkvæmt heimildum Mannlífs eru skýrslur barna­verndar um einstök mál barna ávallt trúnaðar­gögn.
Leik­skóla­stjórinn sagðist „nokkuð viss“ um að slík gögn væru ekki trúnaðarmál.

Eftir umfjöllunina hafði fyrrum starfs­maður leik­skólans samband við Mannlíf. Sá starfs­maður hefur óskað eftir nafnleynd í tengslum við málið. Í samtali við Mannlíf greinir starfs­maðurinn frá reynslu sinni.

Starf­maðurinn segir að leik­skólanum hafi verið stjórnað á vafasaman hátt og sagði því starfi sínu lausu. „Ég sagði upp vegna þess fyrst og fremst ég treysti mér ekki til þess að bera ábyrgð á þessu, sem að hún og fólk sem hún hafði raðað í kringum sig, þar á meðal þessi maður voru að gera,“ segir starfs­maðurinn sem ætlaði að vinna uppsagna­frestinn.

„Ég mætti til vinnu og þar beið mín bréf, það var búið að loka á netpóstinn og allt, ég gat ekki sagt foreldrum að ég væri hætt,“

Starfs­maðurinn segir að hann hafi þannig verið rekinn vegna þess að hann hafi krafist endurbóta við leik­skólann og mörgu ábótavant.

„Ástæðan fyrir þessu er að starfs­fólkið, og ég var náttúru­lega með í því, skrifuðum bréf og söfnuðum undir­skriftum starfs­fólksins þar sem við vorum að mótmæla aðstöðu, og allt of mörgum börnum á hvern starfs­mann og svo framvegis.“

Þá segir starfs­maðurinn að hann hafi herjað á borgina í kjölfarið en gekk þar á algjöran vegg.

„Ég leit svo á að þau bæru ábyrgð á öllum starfandi leik­skólum í Reykjavík og ég mætti mjög litlum skilningi, ég bara var að skylmast við einhverja unga lögfræðinga þarna í bréfa­skriftum og fleira.“

„Ég veit ekki til þess að borgin hafi brugðist við þessu,“ segir starfs­maðurinn en gríðar­lega erfitt hefur reynst að fá svör frá Reykja­víkurborg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum