Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Hræðilegur dauðdagi hjóna vegna mistaka hótels: „Ég þjáist enn af því áfalli að sjá þau deyja“

Barna­barn hjóna sem lét­ust á hót­el­her­bergi í Egypta­landi seg­ist hafa tekið eftir „við­bjóðs­legri“ lykt á her­bergi þeirra nokkrum klukku­stundum áður en þau fund­ust látin. Málið þótti hið dul­ar­fyllsta en eftir rann­sókn kom í ljós að hjónin höfðu lát­ist úr kolmónoxíð­eitrun af völdum gufa frá skor­dýra­eitri sem notað var inn á hót­el­her­bergi þeirra. Eitrinu hafði verið spreyjað í rúm hjón­anna skömmu áður en þau dvöldu á lúx­us­hót­eli ásamt öðrum fjöl­skyldu­með­limum. Kvöldið örlaga­ríka flutti dótt­ur­dóttir hjón­anna sig yfir í her­bergi móður sinnar vegna lykt­ar­innar en hafði hún áður gist í sama her­bergi. Í sam­tali við Breska fjöl­miðla sagði hún lykt­ina hafa verið svo slæma að henni varð óglatt.

Hjónin ásamt dóttur sinni, Kelly

Daginn eftir hitt­ist fjöl­skyldan á sund­lauga­bakk­anum og voru gömlu hjónin ekki eins og þau áttu að sér að vera. Þau fóru upp á her­bergi þangað sem dóttir þeirra, Kelly, kom og gáði að þeim síðar um dag­inn. „Um leið og hann opn­aði hurð­ina fann ég lykt af upp­köstum og hann bull­aði bara. Hann sagði mér að þeim liði hræði­lega. Þegar hann gekk… var það eins og að horfa á hopp­bolta. Hann gekk í sikksakk og hall­aði sér upp að veggj­unum,“ sagði Kelly. Móðir hennar lá í rúm­inu og hafði ælt út um allt. Kelly og vinur fjöl­skyld­unnar báðu hót­elið um að hringja á lækni en það tók hann einn klukku­tíma að koma. Á þeim tíma segir Kelly að and­ar­dráttur for­eldra sinna hafði breyst. Þegar lækn­ir­inn kom var kallað á annan lækni þar sem faðir Kelly var hreyf­inga­laus og móðir hennar stundi af sárs­auka. „Ég þjá­ist enn af því áfalli að sjá þau deyja á svo hræði­legan hátt. Fjöl­skylda okkar er nið­ur­brotin án þeirra. Ég er enn í svo miklum sárum yfir þeirri hugsun að hægt hefði verið að koma í veg fyrir dauða þeirra en ég er ánægð með að við höfum nú loks­ins svörin. Þetta hefði aldrei átt að ger­ast í fyrsta lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027