Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Fimmtán ár frá mann­skæð­ustu hryðju­verka­árásum Norð­ur­landa

Minningarlundurinn í Vatnsmýri
Minn­ing­ar­lund­ur­inn í Vatns­mýri Sig­mundur Ernir Rún­ars­son alþing­is­maður flutti ávarp fyrir hönd Sam­fylk­ing­ar­innar og Þröstur Ingv­ars­son sá um tón­list­ar­flutn­ing. Mynd: Facebook/Norges ambassade i Reykjavik

Á mið­viku­dag­inn fór fram árleg minn­ing­ar­at­höfn í 22. júlí-minn­ing­ar­lund­inum í Vatns­mýri, þar sem þess var minnst að 15 ár eru liðin frá hryðju­verka­árás­unum í Ósló og Útey árið 2011. Það var Ungt jafn­að­ar­fólk sem stóð fyrir athöfn­inni.

Hilde Janne Skorpen, stað­geng­ill sendi­herra (chargé d’affaires a.i.) hjá norska sendi­ráð­inu, flutti ávarp við athöfn­ina. Í máli sínu lýsti Skorpen yfir áhyggjum af því að 15 árum eftir árás­irnar eigi hægriöfga­fullar hug­myndir enn fylgi að fagna. Vakti hún sér­staka athygli á því að ungt stjórn­mála­fólk, sem berst fyrir jafn­rétti og lýð­ræði, búi enn við ógn­anir og hat­urs­orð­ræðu. Und­ir­strik­aði hún ríka ábyrgð sam­fé­lags­ins alls til að koma í veg fyrir að slík við­horf nái að skjóta rótum.

Auk Skorpen flutti Sig­mundur Ernir Rún­ars­son alþing­is­maður ávarp fyrir hönd Sam­fylk­ing­ar­innar og Þröstur Ingv­ars­son sá um tón­list­ar­flutn­ing.

Norska sendi­ráðið kom á fram­færi sér­stökum þökkum til Ungs jafn­að­ar­fólks fyrir að halda minn­ing­unni á lofti ár hvert. Í yfir­lýs­ingu frá sendi­ráð­inu var lögð áhersla á órjúf­an­leg tengsl Íslands og Noregs og áréttað að árás á lýð­ræðið í öðru rík­inu væri árás á þau bæði.

Mannskæðustu fjöldamorð í sögu Noregs

Hryðju­verka­árás­irnar þann 22. júlí 2011 eru mann­skæð­ustu voða­verk sem framin hafa verið í Noregi á frið­ar­tímum. Alls lét­ust 77 ein­stak­lingar í tveimur sam­felldum árásum hægriöfga­manns­ins Anders Behring Breivik:

Árás­irnar hófust síð­degis þegar öflug heima­gerð bíla­sprengja sprakk í mið­borg Óslóar, nálægt stjórn­ar­ráðs­bygg­ingum lands­ins. Sú spreng­ing varð átta manns að bana og olli gríð­ar­legu tjóni.

Skömmu síðar hélt árás­armað­ur­inn, dul­bú­inn sem lög­reglu­maður, út í eyna Útey í Tyri­firði. Þar stóðu yfir árlegar sum­ar­búðir AUF, ung­liða­hreyf­ingar norska Verka­manna­flokks­ins. Árás­armað­ur­inn hóf mis­kunn­ar­lausa skot­hríð sem stóð yfir í rúma klukku­stund og varð 69 manns að bana, þar af mörgum ung­lingum og börnum.

Minn­ing­ar­lund­ur­inn í Vatns­mýri var stofn­aður skömmu eftir atburð­ina, sum­arið 2012. Grunnur að lund­inum var lagður við Norræna húsið með gróð­ur­setn­ingu trjáa til að heiðra minn­ingu fórn­ar­lambanna og sýna sam­stöðu nor­rænu þjóð­anna gegn póli­tísku ofbeldi og öfga­fullu hatri.

Hér má lesa færslu norska sendi­ráðs­ins í heild sinni:

„Í gær tók sendi­ráðið þátt í árlegri minn­ing­ar­at­höfn um 22. júlí sem Ungt jafn­að­ar­fólk stóð fyrir í 22. júlí-minni­lund­inum í Vatns­mýri.

Chargé d’affaires a.i., Hilde Janne Skorpen, flutti ávarp fyrir hönd sendi­ráðs­ins. Þar benti hún meðal ann­ars á að enn í dag, 15 árum eftir hryðju­verka­árás­ina, eiga hægriöfga­fullar hug­myndir enn nokk­urt fylgi og að ungt stjórn­mála­fólk sem berst fyrir jafn­rétti og lýð­ræði búi við ógn­anir og hat­urs­orð­ræðu. Skorpen lagði áherslu á ábyrgð okkar allra á því að koma í veg fyrir að slík við­horf nái fót­festu í sam­fé­lagi okkar.

Þing­mað­ur­inn Sig­mundur Ernir Rún­ars­son flutti ávarp fyrir hönd Sam­fylk­ing­ar­innar og Þröstur Ingv­ars­son sá um tón­list­ar­flutn­ing.

Við kunnum Ungu jafn­að­ar­fólki afar miklar þakkir fyrir að hafa frum­kvæði að því að halda minn­ing­ar­at­höfn 22. júlí ár hvert. Noregur og Ísland eiga náin tengsl og árás á lýð­ræðið í einu landa okkar er árás á okkur öll.

Aldrei þegja, aldrei gleyma“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Hönnuður gagnrýnir að fréttir um leikinn beini sjónum að tekjum útgefandans fremur en því sem leikmenn gera í honum.
Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

„Ég biðla til þeirra þingmanna sem kalla sig jafnaðarmenn að beita sér gegn þessum breytingum“

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984