Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Bryndís miður sín: „Hvers á ég að gjalda?“

Bryndís og Jón Baldvin
Bryndís og Jón Baldvin

„Mér er óglatt. Ég neyddi sjálfa mig til að lesa athuga­semdir 57 Íslendinga á fésbók um grein mína, sem birtist á visir.is í gær, laugardag, þann 27. ágúst. Mér er enn flökurt. Ég er enn með óbragð í munninum. Inn i hvers konar heim horfi ég? Illskan, hatrið og ljót­leikinn blasa við. Er þetta virkilega rödd almennings á Íslandi?“

Svona hefst Facebook-færsla Bryndísar Schram sem er afar ósátt við athuga­semdir við grein hennar sem birtist á Vísi um helgina. Í greininni rifjaði hún upp ögurstund í sjálfstæðis­baráttu Litháen er hringt var í eiginmann hennar, Jón Baldvin Hannibalsson og hann beðinn um að koma undir eins til Vilniusar því Rússar gerðu sig líklega til að „láta til skara skríða,“ líkt og Bryndís orðaði það. Þar kemur einnig fram að Jón Baldvin hafi verið hunsaður á dögunum þegar minnast átti sjálf­stæðis Eystrasalts­ríkjanna. Í færslunni talaði Bryndís um illsku og rifjar upp atvikið í Andalúsíu árið 2018 þar sem matar­gestir þeirra hjóna sökuðu Jón Baldvin um óviðeigandi káf.

„Ég tek það fram, að þrátt fyrri háan aldur hef ég aldrei kynnst svona hugsunar­hætti, aldrei heyrt þessa rödd illskunnar. Hvers á ég að gjalda?

En allar þessar ljótu sögur um mig og manninn, minna mig samstundis óþyrmilega á eitthvað í fortíðinni. Já, einmitt, sumarið 2018, fyrir fjórum árum. Þá upplifði ég eitthvað svipað. Það var meira að segja á mínu eigin heimili., hugsið ykkur!Hún heitir Laufey Ósk Arnórs­dóttir. Okkar kynni hófust á Ísafjarðar­árum okkar. Ég hafði boðið henni í heimsókn hingað til okkar í Andalúsíu. Þarna sat hún við hlið mér við matar­borðið, sem var hlaðið matföngum og ljúfum drykk. Vina­fögnuður. Sólin skein, og allt var svo undur fallegt.En allt í einu dró ský fyrir sólu. Mig svimaði og mér sortnaði fyrir augum. Þetta var óbærileg upplifun – óhugnanleg. Allt í einu byrjaði Laufey að öskra á okkur, þar sem hún sat við hlið mér. Hún æpti að manninum mínum, sem sat við hinn enda borðsins. Þetta var í fyrsta sinn á ævinni, sem ég horfði inn í þennan heim haturs og illsku.Hún var stjórn­laus. Jós úr sér óþverranum – notaði sömu orðin og lesendur á visir.is í morgun.: perri, barna­níðingur, drullu­sokkur…….. í það óendanlega.Hún var óstöðvandi. Þegar Jón Baldvin stóð upp frá borðum í vanþóknun sinni, hljóp hún æpandi á eftir honum. Hún þagnaði ekki fyrr en hann vísaði henni á dyr – furðu­lostinn og orðlaus, yfir­kominn rétt eins og ég.Þennan morgun kynntist ég ljót­leikanum, stjórn­lausu hatri og ruddalegri framkomu í fyrsta sinn á ævinni.

Og þessi dapurlegi lestur í morgun minnti mig óþyrmilega á þessa ömurlegu lífs­reynslu fyrir fjórum árum.“

Færsla hennar vakti gríðar­lega athygli en 300 manns hefur sýnt stuðning í verki með því að setja þumal, knús eða grátkarl við hana. Þá hafa fjölmargir skrifað athuga­semdir, oftast til stuðnings þeim hjónum.

Margrét nokkur skrifaði: „57 Íslendingar á Facebook eru herinn hennar Laufeyjar og ekkert annað. Efað herinn hefði verið 340 þúsund þá væri ástæða til að gráta. Brostu bara að vinum hennar Laufeyjar.“

Elisa talaði um öfund: „Það sparkar engin í hundshræ, öfund og afbrýðisemi. Ekkert annað, þig eruð frábær og látið engan segja ykkur annað,sendi faðmlag til þín.“

Þorfinnur nokkur biður Bryndísi að láta þetta ekki fara inn að skinni: „Ekki láta þetta fara inn að skinni, enn síður inn fyrir. Svona komment eru bara eitthvert brotabrot og hitta skilaboða­skjóðurnar verst fyrir, þeirra skömm. Hlýjar kveðjur til ykkar, kæru hjón.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi