Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Innbrotsþjófurinn í Njarðvík enn ófundinn: Þjófurinn komst hálfa leið inn um baðherbergisglugga

Íbúi í Innri Njarðvík í Reykja­nesbæ lenti í þeirri óskemmtilegu lífs­reynslu að koma að innbrots­þjófi á heimili sínu. Hinn óboðni gestur var kominn hálfa leið inn um baðherbergis­gluggann þegar húsráð­anda bar að garði og hann náði að flýja.

Íbúinn vildi ekki tjá sig nánar við blaðamann þegar Mannlíf hafði samband við viðkomandi.

Lögreglan á Suðurnesjum staðfesti að vera með umrætt innbrot til rann­sóknar en gaf ekki nánari upplýsingar um málið, sem er á frumstigi rann­sóknar.

Í Facebookhópi íbúa var málið til umræðu. Þar er að finna annað innlegg, þar sem íbúi veltir fyrir sér skrýtnum ljósum sem hann sjái reglulega bregða fyrir á himninum. Annar íbúi Innri Njarðvíkur svarar því til að um sé að ræða dróna á vegum lögreglunnar á Suðurnesjum.

Síðustu misseri hefur drónaflug á Reykjanesi verið töluvert til umræðu meðal íbúa á svæðinu og þeir furðað sig á því og velt fyrir sér hverjir standi fyrir því. Ekkert hefur komið í ljós í þeim efnum.

Þegar blaða­maður Mannlífs spurðist fyrir um málið hjá lögreglunni á Suðurnesjum var því alfarið vísað á bug að lögreglan hafi nokkuð með þessa dróna að gera. Lögreglu­maðurinn á vakt sagði að ef eitthvað slíkt væri á seyði myndi hann vita af því. Hann sagði jafnframt að hver sem er gæti orðið sér úti um dróna líkt og hvað sem er annað. Sérstakt leyfi rekstrar­aðila flugvalla þarf fyrir dróna­flugi innan tveggja kílómetra frá svæða­mörkum áætlunar­flugvalla.

Það er því enn á huldu hvaða óprúttni aðili er að trufla íbúa Innri Njarðvíkur á kvöldin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu