Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hryllingur á Landspítalanum: Ekki fara á bráðamóttöku nema í lífshættu: „Farið varlega kæru vinir“

Hjalti Már Björnsson, læknir á bráða­móttöku Land­spítalans, lýsir á Facebook skelfi­legu ástandi á bráða­móttöku Land­spítalans um þessar mundir. Hann segir raunar að bara þeir sem eru með alvarleg eða hættuleg einkenni ættu að fara þangað þessa dagana. Hann segir tvisvar sinnum fleiri í hverju plássi en eiga að vera þar. Hann biður fólk því að hugsa sérstak­lega vel um heilsuna, því heilbrigðis­kerfið geti ekki aðstoðað eins vel og það ætti.

Pistill Hjalta í heild sinni:  

Farið varlega kæru vinir.

Á bráða­móttöku Land­spítala eru þegar allt er talið 46 skoðunar- og meðferðar­pláss. Í þeim eru á þessari stundu alls 90 einstaklingar.

Af þeim eru 39 sem hafa lokið bráða­meðferð og greiningu og ættu að vera komin á legu­deildir.

Það er langt síðan við fórum að merkja ganga­stæði, nú eru alls 30 á göngum deildarinnar, þar af 5 einstaklingar skráðir í ganga­stæði nr 1.

Á legu­deildum er staðan ekki skárri, mikill faraldur öndunarfæra­sýkinga er í gangi og legu­deildir allar fullar eða yfir­fullar. Á Land­spítala eru 14 gjörgæslu­pláss fyrir veikustu einstaklingana, í þeim eru nú 16. Til viðbótar er víða undir­mannað.

Geta okkar í heilbrigðis­kerfinu til að aðstoða ykkur við bráðum veikindum og slysum er því fjarri því eins góð og við myndum vilja.

Farið því varlega í hálkunni og notið mann­brodda. Hugsið um sótt­varnir ef þið eruð með öndunarfæra­sýkingu. Ef þið finnið fyrir vægum einkennum er gott að hafa fyrst samband við 1700 og leita ráða hvert er best að leita.

Ef þið finnið fyrir alvarlegum eða hættu­legum einkennum á þó aldrei að hika við að koma á bráða­móttöku

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Meðal þeirra sem þar hafa búið eru Cher, Elton John, Lindsay Lohan og Courteney Cox.
Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri