Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tara Margrét hættir í stjórn: „Ég er að lenda harkalega á vegg núna“

Tara Margrét Vilhjálmsdóttir
Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir

Tara Margrét Vilhjálms­dóttir hefur ákveðið að segja sig úr stjórn Samtaka um líkams­virðingu. Þessu greinir hún frá í færslu á Facebook.

Tara Margrét hefur gegnt stjórnar­störfum í samtökunum frá stofnun þeirra, um tíu ára skeið. Hún hefur lengi verið fremst í flokki í baráttu gegn fitu­fordómum og hefur vakið mikla athygli á mikilvægi líkams­virðingar.

„Þetta er ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið en ég finn að ég þarf að gera það fyrir eigin heilsu og velferð. Stjórnar­störfin hafa verið gefandi og stórkostleg en þau hafa líka tekið mikið frá mér og ég er að lenda harkalega á vegg núna. Ég finn mig knúna til að hlusta á þau merki sem líkaminn gefur mér um örmögnun og kulnun og hlýða þeim.“

Tara Margrét áréttar að þrátt fyrir að hún segi sig frá stjórnar­störfum samtak­anna þýði það ekki að hún ætli sér að hætta að tala fyrir líkams­virðingu og gegn fitu­fordómum, eða hætta að tjá skoðanir sínar á hinum ýmsu vígstöðvum.

„Þið losnið ekki svo auðveldlega við mig,“ segir hún.

Tara Margrét segir mikla hugsjón og kraft í líkams­virðingar­samfélaginu á Íslandi og hún segir það kristallast í núverandi stjórn Samtaka um líkams­virðingu.

„Ég er ótrúlega spennt að fylgjast með og klappa fyrir áfram­haldandi stjórn og störfum þeirra í fram­tíðinni. Efst í huga undan­farna daga er líka þakklæti fyrir allt peppið, hugulsemina og stuðninginn sem ég hef fengið frá vinum, fjöl­skyldu og samfélaginu öllu sl. 10 ár. Óteljandi komment og skilaboð frá allskonar fólki sem þakkaði fyrir sig og hvatti mig til dáða. Allt kraft­mikla og yndislega fólkið sem ég hef kynnst, átt samstarf með og eignast ævilanga vini í. Ég ætla að halda fastar í það en mótlætið sem ég hef mætt.“

Hún lætur í ljós að hugsanlega sé hún ekki búin að kveðja samtökin fyrir fullt og allt.

„Og hver veit? Kannski sný ég aftur til stjórnar­starfa þegar ég hef náð meira jafnvægi og fyllt á tankinn. Framtíðin er enn óráðin. En fyrst ég er að taka mér þessa pásu langaði mig að nýta tækifærið og segja takk. Fyrir allt.“

Færsluna má sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu