Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Simmi lætur stjórnmálamenn fá það óþvegið: „Þegjandi meirihlutinn sem bara er látinn borga brúsann“

Sigmar Vilhjálmsson.
Sigmar Vil­hjálms­son.

Athafna­maðurinn Sigmar Vilhjálmsson, eða betur þekktur sem Simmi Vill, deilir á Facebook pistli þar sem hann lætur íslenska stjórn­málamenn heyra það. Hann segir að atvinnu­rekendur lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja greiði hlutfalls­lega hærri gjöld en stóru fyrir­tækin. Enn fremur segir Simmi að aðgerðir Seðla­bankans kosti þessa sömu aðila milljarða króna.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Simma í heild sinni.

Nýtt ár og stjórn­málin skála.

Nú þegar stjórn­málamenn eru búnir að hrósa hvor öðrum í Krydd­síldinni og við búin að halda uppá áramótin þá tekur raun­veruleikinn við. Verð­hækkanir og skatta­hækkanir á milli­stéttina í þessu landi blasir við. Lítil og meðalstór fyrirtæki halda áfram að fá á sig verð­hækkanir og launa­hækkanir. Síðan eru þessir sömu aðilar beðnir um að sína ráðdeild og hækka ekki verð til að ýta ekki undir verðbólgu, ferðast ekki erlendis og fara sér hægt í að njóta erfiðisins.

Nú veit ég ekki hvort að stjórn­málamenn séu svo úr takti við raun­veruleikann að þeir átta sig ekki á því að ekki er hægt að taka á sig hækkað verð aðfanga og hærri launa­greiðslur án þess að hækka verð eða hvort að þeir hafi hreinlega enga þekkingu á því hvernig megin þorri atvinnu­lífsins virkar eða hvað það þýðir að reka fyrirtæki.

Ég hef bent á það í töluvert langan tíma að atvinnu­rekendur lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja eru að greiða hlutfalls­lega hærri gjöld og skatta til ríkisins en stóru fyrir­tækin. Eru þingmenn ekki að sjá það, hafa þingmenn ekki þekkingu eða er þing­mönnum  bara sama um það?

Það má segja að atvinnu­lífið sé eins og umhverfi heimil­anna. Það er lágstétt sem nær ekki endum saman, það er hástétt sem skilar gríðar­legum hagnaði og síðan er það milli­stéttin sem er látin bera uppi allan kostnað, skatta og gjöld.

Þegjandi meirihlutinn sem bara er látinn borga brúsann og hætta að láta sig dreyma um að gera sér glaðan dag, vinna bara meira.

Ég hef bent fjármála­ráðherra (Bjarni Benediktsson) á þá staðreynd að með hverjum 1.000kr sem laun hækka í nýjustu launa­hækkunum, hækka skatt­tekjur Ríkisins um að lágmarki 314,5 kr. Það þýðir að með þeim launa­hækkunum sem eru nú að ganga í garð þá hækka tekjur Ríksins gríðar­lega, hunduðir milljarða. Hvert á að setja þessa peninga?

Aðgerðir Seðla­bankinn kosta lítil og meðalstór fyrirtæki miljarða á milljarða ofan, en skuldir fyrir­tækja í landinu eru um 5.000 milljarðar og hvert 1% kostar fyrir­tækin í landinu 50 milljarða.

Seðla­bankastjóri hefur bent á að þetta er eina tækið sem Seðla­bankinn hefur til að sporna við verðbólgu, en hefur einnig bent á að Ríkið hefur fullt af mögu­leikum í stöðunni. En það hefur nákvæmlega ekkert komið frá Ríkinu til þess að sporna við stöðu fyrir­tækja í þessu umhverfi.

Ég hef bent á það að til þess að sporna gegn verðbólgu þá væri tilvalið að horfa á Trygginga­gjaldið, gera það þrepa­skipt eins og Fram­sókna­flokkurinn (Sigurður Ingi Jóhannsson) setti fram í kosninga­loforðum síðustu kosninga. Það myndi jafna leikinn í atvinnu­lífinu. Enda algjör­lega galið að fyrirtæki sem eru að greiða hátt hlutfall launa skuli líka þurfa að borga hærra hlutfall trygginga­gjalds. En fyrir þá sem ekki vita, þá eru lítil og meðalstór fyrirtæki með hlutfalls­lega mun hærra launa­hlutfall en stór­fyrirtækin hér á landi.

Almennir borgarar eiga í daglegum viðskiptum við lítil og meðalstór fyrirtæki, ef að við getum hækkað hér laun án þess að hækka vöruverð, þá spornum við gegn verðbólgu og um leið staðið vörð um þau störf sem er að finna í litlum og meðal­stórum fyrir­tækjum. Með því að hlutfalla trygginga­gjald, jafnvel miða hér við veltu en ekki laun, þá myndi það ekki bara jafna stöðu fyrir­tækja á Íslandi, heldur myndi það gera fyrir­tækjum kleift að hækka hér laun án þess að það skili sér beint inní verðlagið.

Já, vel á minnst, rúmlega 70% allra launþega á íslandi starfa hjá litlum og meðal­stórum fyrir­tækjum.

Núna verða stjórn­málin að taka hausinn uppúr sandinum, atvinnu­lífið þarf á athygli að halda og þá er ég ekki að tala um Hlutabréfa­markaðinn eða stór fyrir­tækin.

99% allra fyrir­tækja hér á landi eru lítil eða meðalstór og þau fá alltof litla athygli stjórn­málanna, svo ekki sé talað um athygli Samtök atvinnu­lífsins.

Það eru til þúsund leiðir að flá gölt, kominn tími á að velja fleiri en eina

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Húsið var reist árið 1993
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi