Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Fjórar konur saka Jared Leto um kynferðisbrot

„Þetta gerð­ist fyrir 25 árum ... og hann hefur kom­ist upp með það“

Jaret Leto
Jaret Leto Leto er nú sak­aður um kyn­ferð­is­brot Mynd: Instagram

Fjórar konur saka banda­ríska leik­ar­ann og tón­list­ar­mann­inn Jared Leto um refsi­verða kyn­ferð­is­lega hátt­semi í nýrri heim­ild­ar­mynd BBC, Jared Leto: Hollywood's Dark Secret. Konurnar segja meint brot hafa átt sér stað þegar þær voru á ung­lings­aldri.

Ein kvenn­anna segir að hún hafi verið 17 ára þegar Leto hafi beitt hana kyn­ferð­is­of­beldi á bað­her­bergi mótels. Önnur segir að hann hafi hótað henni kyn­ferð­is­of­beldi þegar hún var ein með honum á hót­el­her­bergi, 19 ára gömul.

Þriðja konan heldur því fram að hún hafi verið 17 ára þegar hún átti í kyn­ferð­is­sam­bandi við Leto í Kali­forníu, þar sem lög­aldur til kyn­ferð­is­legra sam­skipta er 18 ár.

Fjórða konan hélt því fram að Leto hefði tælt hana, og lýsti kyn­ferð­is­lega grófum sím­tölum hans til hennar þegar hún var 16 ára. Hún segir hann meðal ann­ars hafa lagt til að þau myndu sofa saman. Konan seg­ist einnig hafa verið beðin um að skrifa undir þagn­ar­samn­ing, en hafi hafnað því.

Alls ræddu tíu konur við BBC vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar. Sumar þeirra halda því fram að atvik hafi átt sér stað þegar þær voru aðeins 14 ára gamlar, á tíma­bil­inu 2002 til 2016.

Ein þeirra segir að það hafi tekið hana ára­tugi að segja sögu sína.

„Þetta gerð­ist fyrir 25 árum ... og hann hefur kom­ist upp með það,“ segir hún í mynd­inni.

Tveir menn sem störf­uðu með hljóm­sveit Letos, 30 Seconds to Mars, segja jafn­framt að hann hafi stundum boðið ung­lings­stúlkum bak­sviðs, í bún­ings­her­bergi sitt eða heim til sín þar sem hann vann að tón­list.

„Ég held að öllum hafi fund­ist ald­urs­mun­ur­inn ein­fald­lega of mik­ill,“ segir annar þeirra.

Leto er 54 ára gam­all og hefur átt far­sælan feril sem bæði tón­list­ar­maður og leik­ari. Hann hlaut Ósk­arsverð­laun sem besti leik­ari í auka­hlut­verki árið 2014 fyrir leik sinn í Dallas Buyers Club og er einnig þekktur fyrir hlut­verk sitt sem Jókerinn í Suicide Squad.

Árið 2025 vís­aði Leto á bug ásök­unum um kyn­ferð­is­brot eftir að nokkrar konur höfðu stigið fram með sam­bæri­legar frá­sagnir. Þá greindi Air Mail frá því að níu konur hefðu sakað hann um óvið­eig­andi hegðun þegar þær voru á ung­lings­aldri.

Leto hefur ekki verið ákærður fyrir þau brot sem fjallað er um í heim­ild­ar­mynd BBC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Innlent

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­ver­andi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúx­us­ferða­tösku

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu