Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lætur vinstri menn hafa það óþvegið: „Menn halda því fram að fátækir séu alltaf að verða fátækari“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson fer mikinn í hlaðvarps­þættinum Ein pæling á Vísir.is sem er í umsjón Þórarins Hjartar­sonar. Segir hann meðal annars að stéttar­skipting sé ekki til á Íslandi.

Aðstoða­maður Dómsmála­ráðherra, hinn umdeildi Brynjar Níelsson skóf ekki af því í nýju viðtali sem hann var í í hlaðvarps­þættingum Ein pæling. Á einum stað í viðtalinu er hann spurður út í Madame Butterly málið sem kom upp í íslensku Óperunni en Þórarinn spyr hann hvað honum finnist um það mál, þar sem Óperan var sökum um menningarnám. „Ég eiginlega skil ekki þessa vitleysu,“ svaraði Brynjar og brosti. Hann hélt áfram: „Leikrit er leikrit sko. Og þetta er sviðslist. Og þú ert að fara í hinu ýmsa heima. Þetta er ekki bara þinn heimur, í kringum þig. Við getum hugsað okkur japanskt leikhús sem taki einhverjar bókmenntir um landnema í Vestrinu. Og klæddu sig upp eins og þeir. Japanskt leikhús getur þá sett á sig kúreka­hatt og setja það á svið, þó þeir séu japanskir leik­ararnir. Þetta er bara hluti af því. Þú ert að endur­spegla eitthvað sem er ekki endilega þekkt í þínum menningar­heimi.“

Brynjar sagði svo að það sé alltaf eitthvað stríð í gangi, sé horft til baka í sögunni. Það hafi til dæmis verið stétta­stríð sem hafi svo horfið þegar að sósíalisminn hrundi. Þá hafi tekið við kynja­stríð. „Og nú er þetta orðið í bland, barátta kynþátta. Af því að nú eru komnir svo margir kynþættir á hverjum stað, sérstak­lega hér á Vestur­löndum. Þá er komið þetta kynþátta­stríð. Það er eins og frelsið henti aldrei neinum. Það er alltaf einhver hópur móðgaður. Einhverjum misboðið. En ef þú vilt lifa í frjálsu samfélagi, þá þarftu bara að umbera það að það er eitthvað leikrit, sem getur verið um þinn kynþátt en hann er leikinn af einhverjum allt öðrum. Og það er auðvitað bara allt í lagi. Þetta er bara hluti af listinni, hluti af frelsi lista­mannsins. Það má gera hvað sem er. Við gerum grín að öldruðum. Við gerum grín að hvítum, miðaldra Sjálfstæðis­mönnum.“

Þegar Þórarinn spurði hann hvað honum finnist um þá skýringu sumra að til séu ákveðnir undirokaðir minnihluta­hópar sem ættu að vera undan­skildir „gríni og glensi“ svaraði Brynjar um hæl: „Þetta er alltaf sama gamla vinstri­mennskan, það er undirokuð alþýðan, undirokaðu kynþáttu, undirokaðar konur, þetta snýst allt um þetta. Og ef þú ferð í þennan hóp, hverjir eru í þessu kynja­stríði? Þetta eru bara gamlir sósíal­istar eftir að þetta stétta­stríð hvarf. Þeir eru meira að segja að reyna að rífa upp stétta­stríðið aftur núna. Þú sérð eitthvað leikrit núna eftir Gunnar Helgason þar sem menn halda því fram að fátækir séu alltaf að verða fátækari og allt sé að verða verra. Þetta er allt einhver þvæla. Þetta er bara rangt!“ sagði Brynjar og segir að menn séu enn að reyna að halda því fram að munurinn á milli ríkra og fátækra sé að aukast á Íslandi. „Ef þú ferð til Tenerife og ert á hóteli. Þá er ég á hóteli með öryrkjanum, ég er á hótelinu með innflytjandanum, ég er á hótelinu með heild­salanum og ég er á hótelinu með stór­kaup­manninum. Allir á sama hóteli sko.“ Bætti hann því við að það væri ekkert stétta­stríð á Íslandi en „það eru nokkrir menn sem eiga verðmæt fyrirtæki en það er allt og sumt.“

Hér má sjá brot úr viðtalinu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim