Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Gunnar Smári segir Ríkisstjórnina refsa Rúv fyrir Verbúð: „Þeim sem fara yfir strikið er refsað“

Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson
Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson

 Gunnar Smári Egilsson, innsti koppur í búri Sósíalista­flokks Íslands heldur því fram að nú ætli ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur að refsa Rúv fyrir Verbúðar­þættina vinsælu.

Gunnar Smári Egilsson setti fram færslu á Facebook síðu Sósíalista­flokksins í gær þar sem hann bendir á að Verbúðin hafi slegið í gegn en í þáttunum er athygli dregin að hans mati stærsta ráni Íslands­sögunnar, kvóta­kerfinu. Í kjölfarið hafi myndast samstaða meðal stjórnar­flokkanna, sem allir styðja kvóta­kerfið, að taka Ríkis­útvarpið af auglýsinga­markaði. Þetta segir Gunnar Smári enga tilviljun heldur vera refsingu ríkis­valdsins.

Hér fyrir neðan má sjá færsluna:

„Ísland í dag:

1. Verbúðin slær í gegn á Ríkis­sjónvarpinu og dregur athygli að stærsta ráni Íslands­sögunnar; kvóta­kerfinu.2. Samstaða myndast meðal ríkis­stjórnar­flokkanna, sem allir styðja kvóta­kerfið og kvóta­kóngana, að taka Ríkis­útvarpið af auglýsinga­markaði.

Tilviljun? Nei, þannig virkar þetta ekki. Þeim sem fara yfir strikið er refsað. Annars gæti auðvaldið misst völdin. Markmiðið er að veikja RÚV og gera það háðara stjórn­völdum.“

Færslan vakti mikla athygli og fjölmargir líkuðu við hana og þó nokkrir skrifuðu athuga­semdir.

Sigmundur Ernir, fjölmiðla­maður og fyrrum alþingis­maður spyr til dæmis góðrar spurningar. „Stóra spurningin er hvort einhver munur er á fulltrúa xD og VG í ráðuneyti kvótamála …“

Gunnar Smári svarar Sigmundi Erni um hæl.
„Enginn munur. Kvóta­greifar stjórna. Flokkar sem hafa komið að og stutt kvóta­kerfið í ríkis­stjórn eru: Sjálfstæðis­flokkur, Framsókn, Alþýðu­flokkur, Alþýðu­bandalag, Borgara­flokkurinn, Samfylking, VG, Viðreisn og Björt framtíð.“

Færsluna má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Á þingferli sínum vakti hún athygli fyrir að flytja ræður með annað brjóstið bert.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu