Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Sigmundur gefur lítið fyrir skýringar Birgis: „Við erum ekki að fara að elta hann út í þetta fen.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir skýringu Birgis Þórarins­sonar um að liðhlaup hans úr þing­flokki Miðflokksins megi rekja til Klaustur­málsins „þriggja ára gamla eftirá­skýringu sem haldi ekki alveg vatni.“

Sigmundur er ekki einn um þá skoðun, enda hafa ýmsir, bæði úr þingheimi og utan hans, talið það hæpið að ætla að skella skuldinni á Klaustur­málið, eftir að hafa í heil þrjú ár eftir það setið sem fastast í flokknum.

Sigmundur segir að á þessum þremur árum sem liðin séu hafi Birgi verið treyst fyrir hinum ýmsu hlut­verkum innan flokksins. Eftir fund stjórnar Miðflokksins í gær sagði Sigmundur í samtali við mbl.is að vista­skipti Birgis væru vonbrigði.

Hann telur þó ákvörðun Birgis fyrst og fremst ranga gagnvart því fólki sem unnið hafi hörðum höndum að því að koma honum á þing í Suður­kjördæmi. Það hafi tekist með átta atkvæðum.

Sigmundur segir ákvörðunina vissulega hafa komið á óvart. Hann hafi þó verið varaður við því af fleirum en einum að Birgir myndi fara í bólið með Sjálfstæðis­flokknum.

Sigmundur segist hafa neitað að trúa því. Birgir hafi heitið því við fólkið í kjör­dæminu að hann yrði með Miðflokknum og hafi auk þess lagt mikið á sig til að vera valinn oddviti í kjör­dæminu.

Sigmundur vísar því á bug að lykilmenn flokksins hafi reynt að sjá til þess að Birgir hlyti ekki oddvita­sæti, eins og Birgir hefur haldið fram. Sigmundur segir að fyrrum stjórnar­manni flokksins hafi ekki þótt uppstilling í Suður­kjördæmi samræmast lögum flokksins, en sá hafi hinsvegar engu að síður sagst ætla að sætta sig við niður­stöðuna. Þarna hafi viðkomandi eingöngu ítrekað athugasemd um að valið hefði ekki farið fram á réttan hátt, en þrátt fyrir það ætti niður­staðan að standa.

Birgir hefur gefið það út að hann myndi gjarnan vilja að Sigmundur og Bergþór Ólason, þeir tveir Miðflokks­þingmenn sem eftir eru, komi með sér yfir í Sjálfstæðis­flokkinn.

Það kemur Sigmundi afar spánskt fyrir sjónir. Hann segir áhugavert að þing­maðurinn sem hafi talið sig nauð­beygðan til að yfirgefa þing­flokkinn vilji nú fá hina tvo þingmenn flokksins með sér.

„En við erum ekki að fara að elta hann út í þetta fen,“ segir Sigmundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu