Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sigurjón ofurhlaupari: ,,Erum hætt að hugsa um náungann á Íslandi”

Sigurjón Ernir
Sigurjón Ernir

Sigurjón Ernir Sturluson ofur­hlaupari og afreks­íþrótta­maður er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar. Sigurjón segist oft enda í nátt­úrunni þegar hann reynir að útskýra hvað það er sem hefur farið úrskeiðis í heilsu okkar á vestur­löndum:

,,Við þurfum að skoða hvernig villt dýr gera þetta og þá sjáum við hvað við þurfum að gera öðruvísi. Við erum komin svo langt frá uppruna okkar og í mikla aftengingu og þar byrja lífsstíls­sjúk­dómarnir. Ef þú sérð hóp af villtum dýrum úti í nátt­úrunni eru yfirleitt nákvæmlega eins í laginu. Þegar þú sérð hjörð af fiskum í sjónum er ekki helmingurinn akfeitur. Af hverju? Af því að umhverfið mótar einstaklinginn. Við erum með matar­umhverfi þar sem 70-80% af vörunum í stór­mörkuðum er unnin vara af einhverju tagi og yfirleitt mikill sykur. Þegar við horfum á ættbálka í Afríku og víðar sem búa við allt annars konar matar­umhverfi eru lífsstíls­sjúkdómar nánast óþekkt fyrirbæri.”

Sigurjón segir í þættinum frá því hvernig ástríða hans fyrir hreyfingu byrjaði strax þegar hann var barn:

,,Ég átti skrýtið uppeldi og ólst upp við aðstæður sem voru á köflum erfiðar. Ég fann mjög fljótt að hreyfing var mitt meðal. Þegar eitthvað bjátaði á vissi ég að mér myndi líða betur ef ég myndi hreyfa mig. Ég gerði þessa tengingu strax í barnæsku og notaði hreyfingu beinlínis sem meðal til að slá á vanlíðan. Hvort sem það var körfu­boltinn sem ég æfði lengi eða önnur hreyfing. Ég ólst upp án föður sem ég hitti mjög lítið og svo dó hann úr krabba­meini. Svo flytjum ég og tvíbura­bróður minn frá móður minni og við bjuggum hjá systur móður minnar. Við fengum gott uppeldi, en auðvitað var það öðruvísi en hjá öðrum að vera hvorki með föður né móður á staðnum. Ég ákvað strax að taka mikla ábyrgð og vildi bera ábyrgð á bæði mér og bróður mínum. Ég passaði í raun upp á okkur báða á ákveðinn hátt og einhverra hluta vegna ákvað ég strax ungur að ég myndi taka ákvarðanir og taka eins mikla ábyrgð og ég gæti.”

Eftir að Sigurjón hætti í körfu­bolta fór hann að halla sér meira að einstaklings­íþróttum og smátt og smátt fann hann löngun til að reyna eins mikið á sig og hann gæti. Hann hefur ítrekað hlaupið ofurhlaup allt að 160 kíló­metrum og stundum með upphækkun allt að 9 þúsund metrum:

,,Orðið ofþjálfun er í raun kolrangt orð. Það er bara til eitthvað sem heitir of mikil þjálfun fyrir þig. En þegar maður byggir sig upp í áraraðir til að þola hluti, er ýmislegt mögulegt. Maður byggir hægt og rólega bæði upp líkamann og hausinn til að þola meira og meira. En það er ekki hægt að fara alla leið á hausnum ef líkaminn fylgir ekki og öfugt. Lengsta hlaupið mitt er 160 kíló­metrar, en mesta áskorunin var hlaup í Frakk­landi sem var rúmlega 150 kíló­metrar með meira en 9 þúsund metra hækkun. Eina leiðin til að vita hvað maður þolir er að kanna hvar mörkin liggja og ég hef lengi viljað skoða hvað ég get þolað mikið. Það sem gerist í ofur­hlaupum eins og þessum er að maður fer í gegnum allan skalann af tilfinningum og stundum meira en maður vissi að væri hægt. Fólk lærir jafnvel meira á sjálft sig í einu svona hlaupi en á mörgum árum í lífinu sjálfu. Áskorun af þessu tagi er eins og hraðs­pólun af lífinu sjálfu. Þú ferð í gegnum spennu, kvíða, vellíðan, vanlíðan, þú lærir að koma þér út úr aðstæðum, þarf að spyrja þig hvernig þú komst þér í aðstæðurnar og þar fram eftir götum. Svo kannski í miðju hlaupi ferð þú að hágráta af því að eitthvað gamalt fær að koma upp á yfir­borðið.”

Sigurjón segir að drif­krafturinn komi ekki síst frá löngun til að geta hjálpað öðru fólki. Með því að æfa sig í að leggja mikið á eigin herðar geti maður aðstoðað aðra:

,,Við erum hætt að hugsa um náungann og ekki síst fólkið sem byggði þetta land upp. Það sem gerist er að á endanum leitar fólk til þín ef það finnur að þú ert sterkur. Ég hef aldrei lent í ,,burnout-i” eða öðru slíku allan þennan tíma og með því að vera stað­fastur og halda alltaf áfram verður maður smám saman klettur sem annað fólk leitar til. Í dag erum við hætt að leggja hluti á börn og unglinga sem hjálpa þeim að verða sterkir einstaklingar. Auðvitað á ekki að þrælka barni, en börn sem ólust upp í sveit á Íslandi þurftu að ganga í alls kyns verk sem hjálpuðu þeim að taka ábyrgð og læra á lífið. Að mínu mati erum við að ala upp einstaklinga í dag sem kunna lítið á lífið þegar þau eru orðin fullorðin. Af hverju er harka orðin mjög neikvætt orð í dag? Er ekki jákvætt að geta verið harður af sér þegar það á við. Börnum og unglingum líður ekki illa í öguðu umhverfi. Þvert á móti verða til alls konar vandamál ef það verður of mikið agaleysi. Okkur þarf að líða reglulega illa til að finna raun­veruleg þægindi. Það er engum hollt að lífið sé alltaf þægilegt og auðvelt.”

https://www.youtube.com/watch?v=Cr0pVstvZMw&t=95s

Þáttinn með Sigurjóni Erni og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálgast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Húsið var reist árið 1993
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi