Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Hörð viðbrögð við umfjöllun um Samherja – „Íslenskt arðrán á fátæku fólki“

Umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í gærkvöldi um Samherja, þar sem staðhæft er að stjórn­málamönnum og embættis­mönnum hafi verið greiddar hundruð milljóna króna í mútur til að fá úthlutaða fisk­veiðikvóta við Namibíu hefur vakið hörð viðbrögð í samfélaginu og um fátt var meira rætt í gærkvöldi manna á milli og á samfélags­miðlum.

Fjöldi einstaklinga tjáði sig um málið á Facebook í gær:

„Hver eru næstu skref þjóðar sem í kvöld fékk innsýn í starfsemi og starfs­hætti stór­fyrirtækis sem hagnast hefur ævintýra­lega á sjávar­auðlind íslensku þjóðarinnar?,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.

„Þvílíkt hugmynda­flug eða hvaðan í ósköpunum ætli Þorsteinn Már hafi eiginlega fengið þessa hugmynd að kvóta­kerfi geti fram­kallað ofsagróða og til að það geti gengið smurt þurfi að væta gogga valdhafa?,“ segir Jakob Bjarnar Grétarsson blaða­maður á Vísi.

„BEHAVING LIKE THE LOWEST OF THE LOW. Íslenskt arðrán á fátæku fólki,“ segir Viðar Eggertsson leik­hússtjóri.

„Samherji fær ekki nægilegan afslátt af íslenskum auðlindum, þeir virðast þurfa að arðræna almenning í Namibíu og Angóla og flytja gróðan í skatta­skjól. Hversu brenglaðir eru hvatarnir í kerfi sem skilar til samfélagsins svona botn­lausri græðgi og svívirðilegri vanvirðingu og skeytingar­leysi fyrir manns­lífum?,“ segir Halldóra Mogensen þingmaður Pírata.

Tónlistar­maðurinn Pétur Örn Guðmundsson slær á létta strengi: „Namibískir dagar á Dalvík hljómar ekki alveg eins þjált og Fiskidagurinn mikli.“

Gunnar Smári Egilsson leggur til að skatt­rannsóknar­stjóri fari í yfirvinnu: „Þar sem mútur eru ekki frádráttar­bærar frá skatti væri klókt af skatt­rannsóknar­stjóra að taka bókhald og öll gögn Samherja í nótt. Þangað má örugglega sækja hundruð milljóna í ríkis­sjóðs, bara af þeim málum sem Kveikur/Stundin eru að fjalla um. Svo má senda málið til saksóknara, en ekki er hægt að greiða stórar mútur út úr fyrir­tækjum án þess að falsa bókhald.“

Drífa Snædal formaður ASÍ segir um umfjöllun Kveiks: „Myndin sem Kveikur og Stundin teikna upp er af heimsvalda­sinnuðum, gráðugum arðræningjum sem einskis svífast. Körlum sem þykjast samfélags­lega ábyrgir hér á landi en gæti ekki verið meira sama um aðstæður þjóðar suður í Afríku. Körlum sem komu í kjölfar vel heppnaðar þróunar­samvinnu og ryksuguðu upp auðlindir í eigin þágu, höguðu sér eins og svívirðilegustu nýlendu­herrar. Þróunar­samvinnunni var hætt vegna hrunsins sem varð einmitt vegna svona hegðunar. Ógeðslegt!“

„Ég var að horfa á Kveik sem ásamt Stundinni afhjúpuðu spillingu og mútu­greiðslur eins stærsta útgerðar­fyrirtækis Íslands, Samherja. Engin stjórnmála­manneskja sem vill láta taka sig alvarlega er að hugsa um neitt annað í dag en hvernig verði brugðist við þessu. Á næstu dögum munum við sjá skýrar línur í íslenskum stjórn­málum og hvernig pólitíkin skiptist á Íslandi milli þeirra sem ætla að verja og líða svona aðferðir og þeirra sem standa fyrir það að svona líðist ekki,“ segir Dóra Björt Guðjóns­dóttir oddviti Pírata í borgar­stjórn.

Blaðamönnum hrósað

Nokkrir hrósuðu frétta­mönnum og blaða­mönnum:

„Ég er alveg dösuð eftir allt upplýsinga­flæðið. Blaða­mennirnir sem stóðu að þessu eru meistarar og hafi einhver efast um gildi góðra blaða­manna, þá ætti sá efi að farinn núna.

En mikið væri gott að búa í landi þar sem það væri hægt að treysta því að það yrðu afleiðingar eftir svona risa uppljóstrun. Ætli það sé séns á því?,“ skrifar Heiða B. Heiðars.

„Kveikur kvöldsins er enn ein stað­festing þess hversu mikilvægt er að við eigum sjálfstætt Ríkis­útvarp. Og engin furða þó að voldug öfl í landinu vilji það feigt,“ segir Jón Viðar Jónsson gagn­rýnandi.

Fréttirnar voru síðan snöggar að slá þessu upp í kaldhæðið grín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Áhorfandi sagði táningsstúlku sem dæmdi leikinn að drepa sig.
Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Lögreglan rannsakar árásina í Mjóddinni sem stórfellda líkamsárás. Þrír eru með stöðu sakbornings.

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá