Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Glowie og Guðlaugur selja græna íbúð á Gufunesi

Svans­vottuð með geggjuðu sjávar­útsýni

Jöfursbás
Jöf­urs­bás Litríkt er það Mynd: fasteignir.visir.is

Söngkonan Sara Péturs­dóttir, betur þekkt sem Glowie, og maki hennar Guðlaugur Andri Eyþórsson, klippari og ljós­myndari, hafa sett til sölu þriggja herbergja íbúð sína í vistvænu íbúða­hverfi í Gufunesi. Söluverð er 53.412.464 kr.

Um er að ræða 55,4 fermetra íbúð á annarri hæð í Jöfursbás 11E, íbúð 203, í húsi sem nefnist Sif. Húsið er hluti af byggð Þorpsins vist­félags, þar sem reist hafa verið Svans­vottaðar íbúðir með áherslu á hagkvæmni, grænar lausnir og sjálfbært umhverfi fyrir ungt fólk.

Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefn­herbergi, opið eldhús og stofu, auk baðherbergis með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Úr stofu er útgengi á svalir sem snúa í suðvestur og njóta góðrar birtu. Eldhúsið er í opnu rými með innréttingu sem nær upp í loft og span­helluborði, en svefn­herbergin eru bæði með fata­skápum og parketi á gólfi.

Sérstaða eignarinnar felst meðal annars í þeim kvöðum sem fylgja byggðinni. Kaupendur þurfa að vera á aldrinum 18 til 40 ára og hámarks söluverð eignarinnar fylgir vísitölu innan hverfisins, sem þýðir að ekki er heimilt að yfirbjóða ásett verð. Þá eru gæludýr velkomin í Jöfursbás.

Byggðin í Jöfurs­bási samanstendur af 137 íbúðum í fimm húsum, á þremur til fimm hæðum, sem raðað er um miðlægt torg og garðrými. Hönnun leggur áherslu á góða rýmis­nýtingu, skjólgóð útisvæði og algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Frá svæðinu er útsýni yfir Geldinganes og Viðey, auk þess sem göngu- og hjóla­stígar liggja meðfram strand­lengjunni og tengja hverfið við Grafarvog.

Íbúðar­húsin eru verksmiðju­framleidd úr forsteyptum einingum og byggð með það að markmiði að tryggja gæði, endingu og vistvænar lausnir. Í tengslum við byggðina eru einnig matjurta­garðar á landi Reykja­víkurborgar sem íbúar geta nýtt til ræktunar.

Deili­skipulag Gufuness byggir á verðlauna­tillögu hollensku arkitekta­stofanna jvantspijker og Felixx, sem unnu alþjóð­lega hugmynda­samkeppni árið 2016. Þar er Gufunes lýst sem „ventli“ fyrir ungt fólk sem sækist eftir borgar­brag, grósku og samfélagslegri nálgun frekar en hefð­bundnum úthverfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Gunnar Smári lýsir baráttunni við veikindin

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði