Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Göngustígamorðingi laus í Maryland – Önnur kona horfin

Kennari í Maryland hvarf sporlaust eftir að hafa sést á útivista­svæði aðeins nokkrum dögum áður en lík fimm barna móðurinnar Rachel Morin fannst á svipuðum slóðum.

Mariame Toure Sylla, sextug, sást síðast að kvöldi 29. júní nærri Schrom Hills Park í Greenbelt, sem er um klukku­tíma norður af staðnum þar sem lík Morin fannst.

Mariame Toure Sylla

Tilkynning um hvarf Morin barst lögreglu 5. ágúst eftir að hún kom ekki heim eftir að hafa farið í göngu í Ma and Pa göngu­leiðina í Bel Air, sem er í Schrom Hills Park, Maryland. Illa barið lík hennar fannst daginn eftir.

Sjá einnig: Fimm barna móðir myrt á vinsælli gönguleið: „Ég elska Rachel, ég myndi aldrei gera henni neitt“
Sjá einnig: Vinkona Rachel fann lík hennar í fráveitu­skurði: „Þetta er svo svívirðilegt athæfi“

Þrátt fyrir mikil líkindi með málunum tveimur, hefur lögreglan ekki opinber­lega tengt þau saman. Yfirvöld sem rannsaka hvarf Sylla, hafa enn engar vísbendingar um málið, þrátt fyrir meiriháttar leit að henni, samkvæmt lögreglu­stjóranum í Greenbelt, Richard Bowers.

Bætti lögreglu­stjórinn við að hann hefði „engar upplýsingar“ um það hvort hvarf hinnar sextugu Sylla væri tengt tveimur nýlegum líkfundum á svæðinu.

Illa farið lík Morin fannst á vinsælli gönguleið á sunnu­daginn en engar handtökur hafa verið gerðar í málinu.

„Við höldum áfram að biðla til almennings um hjálp,“ sagði Bowers í dag. „Því lengur sem hún er týnd … þeim mun meiri áhyggjur höfum við af því að við náum að finna hana heila á húfi.“

Eftir ítarlega leit með leitar­hundum segist lögreglan ekki trúa því að Sylla sé í nágrenni Schrom Hills Park eða heimili hennar, bætti Bowers við.

Samkvæmt WUSA 9, tók Sylla reglulega 30 til 45 mínútna göngutúra í kringum útivista­svæðið, oftast rétt fyrir sólsetur.

Sá möguleiki að kennarinn hafi yfirgefið landið, samkvæmt Bowers, hefur að mestu verið útilokaður.

„Við höfum fengið ábendingar … eins langt og frá Pennsylvaniu … þannig að við vitum að fólk veit af þessu,“ sagði Bowers.

Sylla er umsjónar­kennari þriðja bekkjar í Dora Kennedy French Immersion grunn­skólanum.

Nemendur og aðrir úr samfélaginu heiðruðu Sylla í tilfinninga­þrunginni vöku í síðustu viku.

„Hún er með stórkost­legan persónu­leika. Hún er yndisleg manneskja, að utan og innan. Hún er algjör sólargeislu … Við elskum hana. Stuðningur og ást mun flæða til hennar því það er mikil þörf fyrir hana í skólanum,“ sagði Cece Cole, fyrr­verandi kennari við Dora Kennedy skólann, við WJLA frétta­miðilinn. „Við erum algjör­lega niður­brotin yfir hvarfi hennar og vonum að hún finnist á lífi og örugg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár