Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Þóra missti allt í bruna í Bandaríkjunum: „Eins og einhver ýtti í hann og hann vaknar aftur“

Afturhlið hússins.
Aft­ur­hlið húss­ins. Mynd: Aðsend

Eig­in­maður Þóru Bjarkar Hobson, sem áður bar föð­ur­nafnið Guð­munds­dóttir, var hepp­inn að sleppa lif­andi er eldur varð heim­ili þeirra að bráð í Rhode Island-fylki á dög­unum. Fjöl­skyldan missti allt í brun­anum.

Þóra og fjöl­skyldan

Þóra Björk er upp­alin í Keflavík en hefur búið í Banda­ríkj­unum í á átj­ánda ár en hún er gift Christopher Hobson, sem starfar sem fanga­vörður í fang­elsi í Massachusetts en hún er lærður hár­snyrtir en stjórnar vöru­húsi í Massachusetts. Þau eiga saman dæt­urnar Cylie, 13 ára og Kristínu, 11 ára. Fjöl­skyldan býr í Cumberland á Rhode Island. Hjónin keyptu hús sitt í nóv­em­ber 2017 og hafa þau búið þar síðan.

Bruninn

Föstu­dag­inn 14. apríl fór yngri dóttir Þóru á strönd­ina með vin­konu sinni og fjöl­skyldu hennar en Þóra og eldri dóttir hennar fóru í versl­un­ar­mið­stöð­ina „að stúss­ast“ eins og Þóra orð­aði það í sam­tali við Mannlíf. Þegar mæðgurnar voru búnar að vera í versl­un­ar­mið­stöð­inni í um einn og hálfan tíma fékk Þóra hring­ingu frá Chris sem segir henni að það sé kviknað í hús­inu, að aftan og brunar hún því af stað heim á leið. „En þegar ég kem inn í hverfið þá var búið að loka öllu inni þar en ég hljóp niður göt­una og sé að húsið var orðið brennt að framan líka. Ég hneig niður en þá ég sá alla nágranna mína, allir voru komnir út og allir að reyna að hjálpa mér með því að gefa mér vatn og klaka því það var um 35 stiga hiti og mjög erfitt að sitja í þessum hita,“ sagði Þóra í sam­tali við Mannlíf.

Framhlið húss­ins.
Aft­ur­hlið húss­ins.

Að sögn Þóru tók um 35 til 45 mín­útur að slökkva eld­inn en þá var nán­ast allt farið. „Ég missti móður mína fyrir ell­efu árum síðan og var með lítið mömmu horn með gift­ingar hringnum hennar, gler­augun hennar, öku­skír­teini hennar og annað en það eina sem ég gat bjargað var hring­ur­inn. Herbergi eldri dóttur minnar og her­bergið mitt og Chris var algjör­lega farið. Herbergi yngri dóttur minnar var framar í hús­inu en hún gat náð ein­hverju af klapp­stýru dót­inu sínu en að mestu leiti er allt farið þar. Chris var með ghost­busters safn sem hann var búinn að safna í síðan hann var lít­ill en það er allt farið.“

Fjöl­skyldan missti allt.
Chris var hepp­inn að kom­ast lífs af.

Eins og einhver ýtti við Chris

En af hverju kvikn­aði í?

„Þetta byrj­aðu allt undir sól­hús­inu okkar. Þar vorum við með timbur fyrir varð­eld og vorum búin að safna smátt og smátt fyrir sum­arið. En við vorum með sög undir þarna í boxi en fólk notar þær til að starta var­delda á sumrin. Við vissum ekki að þegar það er heitt þá byrjar hún að tút­tna út og getur startað eldi. En það byrjar þar og fer svo upp sól­húsið, þar erum við gaskút til að hita upp á vet­urnar. Sem betur fer var hann tómur því að var búið að vera svo heit og við ekki þurft að fylla á hann.“ Á þessu augna­bliki var Chris sof­andi í hús­inu, eftir næt­ur­vakt. „Hann byrjar að heyra eins og það væri verið að henda litlu grjóti í glugg­ann hjá honum en hann pældi ekki mikið í því og fór aftur að sofa. En það var eins og ein­hver ýtti í hann og hann vaknar aftur og lítur út um glugg­ann og sér allt svart. Hann byrjar að hlaupa út úr her­berg­inu en þá springur allt og glugg­inn springur inn. Hann hleypur upp og grípur báða hundana okkar, Luna og Cloud. Hann heldur á þeim út en hleypur aftur inn til að ná í föt en 30 sek­úndum eftir að hann grípur fötin, kemur önnur spreng­ing og allt verður alelda.“

Chris komst út en Þóra segir að ekki að það hafi ekki tekið meira en fimm mín­útur fyrir slökkvi­liðið að mæta á vett­vang en alls komu slökkvi­lið frá sex bæj­ar­fé­lögum.

Þakklæti

„Við erum mjög þakk­lát öllum í hverf­inu, slökkvi­lið­inu, lög­regl­unni og sjúkra­liðum, að allir eru heilir á húfi. Húsið við hlið­ina á okkur skemmd­ist smá en það bráðn­aði utan af hús­inu og bíl­skúr­inn brann líka hjá þeim en allt inni er í lagi hjá þeim. Og trygg­ing­arnar okkar sjá alveg um það.“

Sem betur fer eru hjónin vel tryggð en í augna­blik­inu gistir fjöl­skyldan á hót­eli í boði trygg­ing­anna en nú þarf að rífa rest­ina af húsi þeirra og byggja það aftur. Þau eru að leita sér að leigu­hús­næði til að búa í þangað til þau fá nýtt hús og borga trygg­ing­arnar það einnig.

En hvernig líður fjöl­skyld­unni?

„Við erum ennþá í smá sjokki en erum bara þakk­lát að Chris komst úr. Stelp­urnar eru búnar að vera rosa­lega sterkar og ég er ótrú­lega stolt af þeim. Chris var í hernum og var í Írak og Afganistan þannig að hann er ennþá svo­lítið þar eftir að hann heyrði allar spreng­ing­arnar. En ég ætla að fara með hann á spít­ala og láta athuga hvort hann þjá­ist af áfallastreituröskun.“

Þrátt fyrir að vera vel tryggð má búast við óvæntum kostn­aði við að kom­ast aftur á fætur og því hafa vinir þeirra sett upp styrkt­ar­síðu handa þeim. Styrkja má fjöl­skyld­una hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto