Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Kvöldmaturinn klár – kúrbítsbaka með sítrónu og basilíku

Bökur eru frá­bær matur sem gaman er að borða. Látið ímynd­un­ar­aflið ráða því auð­velt er að nota ýmis hrá­efni í fyll­ing­una. Gæta þarf að því að fyll­ingin sem notuð er sé ekki of blaut því þá getur það haft áhrif á botn­inn og komið í veg fyrir að hann verði stökkur og góður. Séu not­aðir safa­ríkir ávextir er gott að blanda smá­vegis hveiti eða maís­sterkju saman við til að þykkja þá, einnig er gott að sáldra smá­vegis hveiti eða möndlu­mjöli í botn­inn en það dregur í sig vökvann.

Mynd/Hallur Karlsson
Mynd/Hallur Karlsson

Kúrbítsbaka með sítrónu og basilíku

8 sneiðar

Botn
200 g hveiti
1 tsk. salt
100 g ósaltað smjör, skorið í
ten­inga og kælt
¾ dl ískalt vatn

Fylling
3 kúr­bítar, sneiddir í þunnar sneiðar
3 hvít­lauks­geirar, 2 sneiddir og 1 rif­inn eða þrýst í gegnum pressu
1 msk. ólífu­olía
½ tsk. salt
100 g mascarpone-ostur, við stofu­hita
1 tsk rifin sítrónu­börkur
50 g parmesan-ostur, rif­inn
15 g basi­líku­lauf, söxuð
1 egg, hrært

Byrjið á því að búa til botn­inn. Setjið þurr­efnin í mat­vinnslu­vél og blandið saman. Bætið kalda smjör­inu saman við og blandið þar til deigið minnir á gróft mjöl. Hellið ísvatn­inu saman við í litlum skömmtum þar til deigið sam­lag­ast, það gæti þurft aðeins minna vatn en sagt er í upp­skrift. Hellið deig­inu úr mat­vinnslu­vél­inni, búið til kúlu og klappið hana síðan niður til að fletja hana aðeins út. Vefjið í plast­filmu og setjið í kæli í u.þ.b. 30-40 mín. Und­ir­búið fyll­ing­una á meðan deigið kólnar. Hitið ofn að 200°C án blást­urs og leggið smjör­pappír ofan á ofn­plötu. Blandið saman kúr­bít, sneiddum hvít­lauk, ólífu­olíu og salti í skál. Hrærið saman mascarpone-ost við helm­ing­inn af parmesan-ost­inum og blandið rifna hvít­lauknum saman við ásamt sítrónu­berk­inum. Leggið deigið á hveitist­ráðan flöt og fletjið það út í óreglu­legan hring u.þ.b. 30 cm í þver­mál. Flytjið deigið yfir á ofn­plöt­una. Smyrjið osta­blönd­unni yfir botn­inn en skiljið eftir 3 cm kant. Raðið kúr­bíts­sneið­unum mjög þétt saman yfir osta­blönd­una, brettið upp á kant­inn á deig­inu og penslið deigið með hrærða egg­inu. Bakið í miðjum ofni í 20 mín. takið síðan bök­una út og sáldrið afgang­inum af parmesa­nost­inum yfir, bakið í 20-25 mín. til við­bótar. Sáldrið basi­líkunni yfir og berið bök­una fram heita eða við stofu­hita.

Umsjón / Nanna Teits­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni