Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Sósíalistar styrkja Vorstjörnuna vel í hverjum mánuði: „Laun stjórnmálafólks eru of há á Íslandi“

Sönn og traust.
Sönn og traust. Mynd: Vorstjarnan.is

Borgar­fulltrúar Sósíalist, þau Sanna Magdalena Mörtu­dóttir og Trausti Breið­fjörð Magnússon, gefa hvort um sig 100 þúsund krónur, mánaðar­lega til Vorstjörnunnar, styrktar­sjóðs sem styður við réttlætis- og hagsmuna­baráttu hópa sem standa illa fjárhags­lega. Frá þessu segir á vorstjarnan.is

„Laun stjórnmála­fólks eru of há á Íslandi og sósíal­istar hafa lagt til að þau verði lækkuð,“ segir Sanna. „Þar til okkur tekst að lækka launin almennt kjósum við að lækka laun okkar sjálfra með þessum hætti, flytja fé sem við fáum til persónulegra nota inn í hagsmuna­baráttu fólks sem stendur miklu verr en við.“

Styrkur borgar­fulltrúanna er því samanlagt 2,4 milljónir á ári. Kemur hann til viðbótar við framlag borgar­sjóðs til Sósíalista­flokksins, sem er rúmar 4,5 milljónir á ári. Flokkurinn færir sem sagt þetta framlag inn í Vorstjörnuna. Þannig má rekja samanlagt 6.9 milljón króna framlag í Vorstjörnuna, til borgar­stjórnar­flokksins.

„Reykja­víkurborg styrkir flokka og stjórnmála­fólk með þeim rökum að hún sé að örva lýðræðið í borginni. Með því að styrkja hagsmuna- og réttlætis­baráttu hópa sem eiga í erfið­leikum með að halda uppi sinni baráttu eflum við lýðræðið miklu betur en að eyða þessum peningum í sjálf okkur eða flokkinn,“ segir Trausti.

Þá benda þau Sanna og Trausti á að fátækt fólk reki sínar hagsmuna­baráttu í samkeppni við þau sem eiga mikinn pening, „ekki síst hagsmuna­samtök auðugustu fjármagns­eigendanna og allra stærstu eigenda allra stærstu fyrir­tækjanna,“ eins og það er orðað á Vorstjarnan.is. Segir þar ennfremur að það segi sig sjálft að hin fátæku og valda­lausu verði oft undir í þeirri baráttu. „Auðvaldið valtar yfir allt þótt það sé að boða lygar á meðan að fátæka fólkið reynir að koma sann­leikanum á framfæri,“ stendur á síðu styrktar­sjóðsins.

„Því miður reyna fjöl­miðlar lítið að vega upp þennan aðstöðumun,“ segir Sanna. „Hagsmuna­samtök allra ríkasta fólksins, kannski í reynd aðeins 50 til 60 manns, drottna yfir allri umræðu í landinu. Raddir fórnar­lamba þeirra, hinna fátæku og valda­lausu, heyrast varla. Ef fjöl­miðlar væru lýðræðis­legir myndu þeir alla daga segja frá kröfum og sjónar­miðum almennings en geta hugmynda hinna ríku einu sinni eða tvisvar á ári.“

Sósíalista­flokkurinn leggur helminginn af framlagi ríkis­sjóðs til flokksins inn í Vorstjörnuna eða rétt rúmlega 13. milljónir króna á þessu ári. Fer hinn helmingurinn til uppbyggingar Samstöðvarinnar. Ef allt er tekið saman er framlag Sósíalista­flokksins og borgar­fulltrúa hans til Vorstjörnunnar því tæpar 20. milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi