Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ein merkasta lækningaplanta landsins – markaðsvirði um 4 milljarðar

Þóra Ellen Þórhallsdóttir. Mynd/skjáskot. Ljósmyndari:©Kristinn Ingvarsson
Þóra Ellen Þór­halls­dóttir. Mynd/skjá­skot. Ljós­mynd­ari:©Kristinn Ingv­ars­son Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

„Hún er vafalaust ein allra verð­mætasta lækninga­plantan í íslensku flórunni,“ segir Þóra Ellen Þórhalls­dóttir, prófessor í grasa­fræði við HÍ.

„Á láglendi er hún núna nánasta bundin við kletta, gljúfur og hólma en þar sem búfjár­beit er lítil á hálendinu finnst hún sums staðar í stórum breiðum í mólendi og deigu landi. Svo vex burnirót uppi á mjög hrjóstrugum fjöllum, t.d. á Vestfjörðum. Ég held að burnirót hafi eitthvað verið safnað hér á landi sl. áratug og á a.m.k. einum stað á miðhálendinu sé ég að hún virðist vera horfin og ég tel líklegra að það sé vegna söfnunar frekar en beitar. Það er jarð­stöngullinn sem er notaður og því þarf að grafa alla plöntuna upp.“

Rann­sóknir hafa sýnt að Burnirót (Rhodiola rosea) getur komið sér vel við að lækna ýmsa kvilla. Talið er að hún geti dregið úr þunglyndi og kvíða og unnið gegn streitu og þrótt­leysi.

Íslenska sauðkindin bítur ekki hvað sem er og hún leggur til dæmis á sig tals­verðan krók til að ná í þær tegundir sem heilla hana mest, eins og t.d. ætihvönn og burnirót. Þótt burnirót finnist í öllum lands­hlutum, allt frá sjávar­máli og upp í 1000 m hæð, þá er hún alls ekki algeng, segir Þóra Ellen Þórhalls­dóttir, prófessor í grasa­fræði við HÍ, en hún leiðir nú teymi sem fékk styrk úr Tækni­þróunar­sjóði til rannsókna á plöntunni burnirót. Þóra Ellen hefur sérhæft sig í gróður­framvindu, blómgunar­líffræði og í verðmætum náttúru sem allt skiptir máli í þessu verkefni auk þess sem hún hefur beint sjónum að loftslags­breytingum í rann­sóknum sínum.

Lokamarkmið að gera ræktun og sölu rótarinnar að aukabúgrein

Rannsóknar­teymi Háskóla Íslands hefur farið af stað til þess að kanna enn frekar l.ækningarmátt jurtarinnar. Þá býr jurtin yfir virkum efnum eins og; lífmassa jarð­stönguls, frægæða, erfða­fjölbreytni. Skyld­leika úr burnirótar­plöntunni er borin saman frá ólíkum búsvæðum. Plantan verður ræktuð við staðlaðar aðstæður og frammistaða plantna og styrkur virkra efna metin eftir tvö ár. Að lokum verður svo besti stofninn valinn og kannað hvernig best er að framreiða afurðir úr henni fyrir sölu til fyrir­tækja á jurta­lyfja-, fæðu­bótarefna- og snyrti­vörumarkaði. Loka­markmið verkefnsins er að gera ræktun og sölu burnirótar að raunhæfri auka­búgrein fyrir íslenska bændur.

Burnirót sem hágæðavara á markaði

Rann­sóknin sem teymið vinnur að kallast „Val og ræktun burnirótar sem hágæða­vöru á markaði.“ Í verk­efninu stendur til að bera saman ólíka stofna burnirótar á Íslandi og er þá m.a. horft til vistfræði, efna­framleiðslu, erfða­fjölbreytni og skyld­leika.

„Plöntur verða síðan settar í tilraunarætkun í tvö ár til að bera saman vaxtar­hraða og eigin­leika ólíkra stofna og leiðir þeirra til fjölgunar.“

Þessi rannsókn fellur einkar vel að Heims­markmiðum Sameinuðu þjóðanna, ekki síst því sem víkur að hnignun líffræðilegar fjöl­breytni og að tryggja sjálfbæra nýtingu vistkerfa lands.

Markaðsvirði hátt í 4 milljarðar

Þóra segir rann­sóknin, einstak­lega hagnýta, en rann­sakendur segja að árlegt markaðs­virði afurða sé a.m.k. 3,5 milljarðar króna og eftir­spurn vaxi stöðugt eða um hartnær 8 prósent á ári. Ofnýting hafi hins vegar leitt til hnignunar plöntunnar, að sögn Þóru Ellenar, og að burnirót sé komin á válista sum staðar, t.d. í fimm Evrópu­löndum. Alþjóða­náttúru­verndar­ráðið (IUCN) og undir­stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafi einnig hvatt til ræktunar burnirótar til að stemma stigu við eyðingu villtra stofna.

Vinnur gegn stressi og þróttleys, eykur einbeitingu og úthald

Burnirótarakrar eru að sögn Þóru Ellenar í nokkrum löndum en ræktun er enn í smáum stíl.

„Burnirót er notuð gegn stressi og þrótt­leysi og til að auka einbeitingu og úthald. Klínískar rann­sóknir virðast styðja við þessa verkun þótt hún sé ekki að fullu sönnuð og þörf sé á ítarlegri rann­sóknum. Þá má nefna að burnirót hefur sýnt mótverkandi áhrif gegn veirum og öndunarfæra­sjúkdómum af þeirra völdum og rann­sóknir hafa m.a. beinst að áhrifum hennar á æðasjúkdóma, krabba­mein og sykursýki. Í þessu verkefni koma saman aðilar sem vilja finna bestu leið fyrir ræktun burnirótar á Íslandi með afurðum sem markaðs­setja má sem sjálfbært fram­leidda hágæða­vöru,“ segir Þóra í fyrirspurnun vegna rann­sóknarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miskabætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík