Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Gerir stólpagrín að menningarnámi og fitusmánun: „Við þurfum að taka til, hreinsa söguna“

Grínverjinn hans Ladda
Grín­verj­inn hans Ladda Mynd: Trausti Hafsteinsson

„Sprengjan sem þurrkaði út Nagasaki 9. ágúst 1945 fékk heitið Feiti maðurinn (Fat man). Eflaust mætti finna betri orð til að þýða enska heitið, t.d. Ístru­belgurinn, Bumban, jafnvel götuleg heiti eins og Fitu­bollan eða Hlunkurinn. Þetta má diskútera lengi á meðan við reynum að gleyma því að þessi frumstæða sprengja, samkvæmt nútíma­standard, drap samstundis næstum 40 þúsund manns og fleiri á eftir.“ Svona byrjar færsla sem Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks skrifaði á Facebook á dögunum. Í henni gerir hann óspart grín að umræðunni um menningarnám og fitu­smánun.

Kristinn hélt áfram:

„Við getum líka einbeitt okkur að sjá í þessari nafnagift skömmun á þeim sem eru í yfirvigt. Jafnvel breyta sögunni og hætta að vísa í „vaxtarlag“ sprengjunnar og hliðra sögu­bókunum með leið­réttingum eins og nú eru stundaðar á barna­bókum Roald Dahls en þar hefur orðið „feitur“ einmitt verið tekið út, af tillitssemi við fólk með háan þyngdar­stuðul.

Einu sinni skrifaði ég um sláandi niður­stöður sem sýndu að börn á Vestur­löndum skoruðu óþægilega hátt á vigtinni og gætu átt skemmri og verri ævi en foreldrarnir. Ég nefndi þetta offitu­faraldur og vísaði í grein frá Alþjóða­heilbrigðis­stofnun Sameinuðu þjóðanna (WHO) þar sem talað um „obesity epidemic“. Samtök um líkams­virðingu létu strax í sér heyra og upphófust miklar rökræður um óheppilega orða­notkun. Ég sónaði út í þeirri umræðu, hugsaði um Sigurjón Digra þeirra Stuðmanna og sönglaði í kollinum „Hann er kominn að niður­lotum vegna fitu“. Svo gleymdist alveg að ræða sjúk­dómana og dauðsföllin sem fylgja aukakíkóunum enda mikil­vægast að sýna líkunum líkams­virðingu.“

Því næst snéri Kristinn sér að Ladda sem á árum áður gerðist sekur um bæði menningarnám og fitu­smánun:

„Við þurfum líklegast að gera stór­hreinsun í íslenskri menningar­sögu því hún er útbíuð af fitu­skömmun og einna verst, að oft fer hún saman við kven­fyrirlitningu. Nagasaki sprengjan hét að minnsta kosti ekki Feita konan sem hefði verið tryllings­lega yfir­drifin skömmun. Þannig sungu Kátir piltar „feitar konur/unna mér í tonnavís“ (á plötunni Einstæðar mæður, 1988) en Laddi var lang­verstur með laginu „Of feit fyrir mig“ (á samnefndri plötu frá 1990).

Á þeirri plötu gerðist Laddi einnig sekur um eitt versta menningarnám Íslands­sögunnar, áður en hugtakið var fundið upp, með laginu um Grín­verjann sem er smánarleg niður­læging á kínversku þjóðinni. Til að kóróna skömmunina brá Laddi fyrir sig gulu andliti (yellowface). Í saman­burði við það menningar­lega þjóðar­morð er yfir­standandi glæpur Íslensku óperunnar smávægilegt hnupl.“

Í kaldhæðnum lokaorðum sínum beinir ritstjórinn spjótum sínum að Asíu en hann fullyrðir að byrjað sé að undirbúa hernað við Kína sem verði eftir tvö til þrjú ár.

„Við þurfum að taka til, hreinsa söguna og einbeita okkur núna sérstak­lega að Asíu. Það er byrjað að undribúa að fara með hernaði gegn Kína eftir 2-3 ár og því verðum við og okkar perlu­vinir og bandamenn, að vera með það á hreinu að sýna nærgætni þegar við köstum kjarnorku­sprengjum á Kína. Passa sérstak­lega að nöfnin á sprengjunum triggeri ekki ónot hjá okkur.Eyðum með virðingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim