Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Björgvin Páll íhugar framboð til borgarstjóra: „Ég er ekki bara handboltakall“

Björgvin Páll Gústavsson, mark­vörður íslenska hand­knattleiks­liðsins íhugar alvarlega að bjóða sig til borgar­stjóra. Þjóð­þekktur einstaklingur hafði samband við hann eftir EM og skoraði á hann. Björgvini Páli fannst hugmyndin ekki svo galin. Segir hann frá þessu á Facebook.

„Kvöldið sem ég lennti á Íslandi eftir EM fékk ég símtal frá þjóð­þekktum einstaklingi sem ég ber mikla virðingu fyrir. Samtalið hófst á því að greina EM á methraða og ræða aðeins um veiruna skæðu en það var ekki eini tilgangur símtalsins. Hann var nefnilega líka að skora á mig að bjóða mig fram sem borgar­stjóra­efni í Reykjavík. Þessi maður þekkir vel til minnar ástríðu fyrir málefnum barna og vildi sjá mig taka slaginn enda þyrfti að taka borgina og snúa við málum þar. Það skrýtna er að þessi hugmynd hljómaði einhverra hluta vegna ekki svo galin og ég er virkilega hrærður yfir þeirri trú sem þessi góði vinur hefur á mér.“

En af hverju ætli þessi þjóð­þekkti einstaklingur haldi að Björgvin yrði góður borgar­stjóri?

„Hausinn fór eðlilega á fullt og ég hugsaði afhverju viðkomandi héldi að ég gæti orðið góður borgar­stjóri. Gæti það verið vegna minnar sýnar á hvernig má auka vellíðan barna, bæta skóla­kerfin okkar og hlúa betur að foreldrum. Eða var það mín saga og mín reynsla sem fékk hann til þess að velta þessari hugmynd upp. Því meira sem ég hugsa þetta því meiri trú hef ég á því að þetta gæti smollið. Minn tilgangur í lífinu er að vera góð fyrirmynd og auka vellíðan en síðustu vikur og mánuði hef ég velt því mikið fyrir mér hvert sé næsta skref hjá mér í að hafa sem mest áhrif.“

Björgvin Páll segist vera miklu meira en bara handbolta­maður, hann sé svo miklu meira og segir meðal annars;

„Ég er ekki bara handbolta­kall, ég er líka 6 ára strákurinn sem beit kennarinn minn, 8 ára strákurinn sem var tekin með hníf í skólanum og lagðir inná BUGL, 12 ára strákurinn sem fékk umsögn í sveit um að ég væri barn sem erfitt væri að elska, 13 ára strákurinn sem heyrði kennarann minn segja „Hann verður aldrei neitt þessi”, strákurinn sem skóla­kerfið brást, strákurinn sem fékk aldrei greininguna mína og lyfin mín, ég er strákurinn sem ólst upp við erfiðar aðstæður, strákurinn sem íþróttirnar björguðu, ég er iðnstúdentinn og bakarinn sem dúxaði.“ Björgvin heldur svo áfram og segir frá ótrúlegum sigrum sínum í lífinu. Hann sé meðal annars einnig faðir og eigin­maður með allskyns greiningar og fyrirmynd sem unnið hefur með börnum undan­farin ár.

Að lokum spyr hann lesendur sína hvort hann sé efni í næsta borgar­stjóra Reykja­víkur. Miðað við viðbrögðin gæti svarið vel verið „já“.

„En er ég efni í næsta borgar­stjóra í Reykjavík? Ég hreinlega veit það ekki… Ef ég tæki slaginn þá væri það einna helst til þessa að taka þátt í byltingu er kemur að málefnum barna. Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börnin er eitthvað sem hljómar allavega vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu