Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Guðmundur Ingi var í hörðum kosningaslag: Skyndilega og óvænt rekinn úr prókjöri Samfylkingar

Guðmundur Ingi Þóroddsson
Guð­mundur Ingi Þór­odds­son

Baráttu­manninum Guðmundi Inga Þórodds­syni, formanni Afstöðu, félags fanga,  hefur verið vísað úr prófkjöri Samfylkingarinnar. Kjör­­stjórn full­­trúa­ráðs Sam­­fylkingarinnar í Reykja­­vík komst að þeirri niður­­­stöðu að fram­­boð Guð­­mundar Inga í flokks­vali Sam­­fylkingarinnar vegna borgar­­stjórnar­­kosninga sé ógilt, á þeim grund­velli að hann upp­­­fylli ekki skil­yrði kosninga­laga um kjör­­gengi. Frétta­blaðið greindi frá þessu og vísaði í lokaða stuðnings­manna­síðu Guðmundar Inga. Kjör­stjórn tók þessa ákvörðun í gærmorgun eftir að hafa áður samþykkt kjörgengi Guðmundar Inga. Úrskurðar­nefnd samþykkti síðan ákvörðunina í gærkvöld. Próf­kjörið hefst núna í morguns­árið.

Guðmundur Ingi er þekktur baráttu­maður fyrir réttindum fanga. Hann á að baki feril sem afbrota­maður en hefur tekið útr refsingu sína. Hann hefur lokið af­­plánun í fangelsi og undir raf­­rænu eftir­­liti. Það er skilningur hans að afplánum hans sé lokið þrátt fyrir reynslu­­lausn sem skil­­greind sé í fullnustu­lögum sem ski­­loðs­bundin eftir­­­gjöf refsingar.

„Ég hefði auð­vitað viljað að Sam­fylkingin stæði með mér til að ég gæti látið reyna á þau mann­réttindi mín að fá að bjóða mig fram, og fyrir dómi ef um þann rétt minn yrði efast, enda liggja ófá lög­fræði­á­lit fyrir um kjör­gengið,“ segir Guð­mundur í til­kynningunni á síðu sinni.

Fram­bjóðandanum hafði áður borist stað­festing frá kjör­stjórn um að fram­boð hans væri gilt. Sú stað­festing barst 22. janúar síðast­liðinn. Hann veltir fyrir sér í tilkynningunni  hvað valdi þessum sinna­skiptum kjör­stjórnar.

„Það er líka sárt að fá þessi tíðindi svona kvöldið áður en prófjörið hefst enda hafði Ásta Guðrún Helga­dóttir, formaður kjör­stjórnar, sagt mér að kjörgengi mitt hefði verið rætt innan flokksins. Ekki væri lengur um það deilt að ég væri kjör­gengur“.

Óljóst er hvert næsta skref Guðmundar Inga verður en hann sagðist í gærkvöld myndu sofa á málinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu