Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Morð á nýársdag: Dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir að stinga mann í bakið

Mynd úr myndabanka
Mynd úr mynda­banka

Það var á  sjötta tímanum að morgni nýársdags þegar maður var stunginn með hnífi í íbúð að Klepps­vegi 42 í Reykjavík og lést hann af völdum stungu­sára. Hinn látni hét Óskar Ámi Blomsterberg, 28 ára að aldri, til heimilis að Hátúni við Rauðavatn.

Áramóta­fögnuður hafði verið kvöldinu áður og Íslendingar hringt inn árið 1983. Óskar var ásamt fleira fólki gest­komandi í íbúðinni sem var á fjórðu hæð hússins að Klepps­vegi 42. Þar voru búsettar tvær ungar konur ásamt börnum sínum en þetta kvöld hafði önnur þeirra farið út á land þar sem hún dvaldi hjá ættingjum sínum.

Óskar kom í samkvæmið seint um nóttina eða um klukkan fjögur. Hitti hann þá manninn sem átti skömmu síðar eftir að verða honum að bana en hét hann Þórður Jóhann Eyþórsson og var þá 25 ára gamall. Skömmu eftir að Óskar gekk inn í samkvæmið upphófust deilur á milli þeirra en var enginn vinskapur þeirra á milli. Lauk rifrildi þeirra með því að Þórður Jóhann fór og náði í hníf og faldi hann innan klæða. Gekk hann að Óskari og réðst á hann í símakrók í íbúðinni og stakk hann 4 sinnum í bakið. Þá fundust 6 för eftir hnífs­stungur í boröplötu á morð­vettvangi og 4 á frakka hins látna.

Þórður, ásamt öðrum gestum, var hand­tekinn um morguninn en var hann úrskurðaður í gæslu­varðhald til 9.mars og gert að sæta rannsókn á geðheil­brigði og sakhæfi. Sex mánuðum síðar féll dómur í málinu. Fjallað var um málið í blöðunum en í Dagblaði Vísis þann 30. júní segir: ,,Þórður Jóhann Eyþórsson var í dag dæmdur til að sæta 13 ára fangelsis­vist fyrir að hafa orðið Óskari Áma Blomsterberg að bana 1. janúar sl. Það var Birgir Þormar saka­dómari sem kvað dóminn upp en af hálfu ókæru­valdsins sótti málið Bragi Steinarsson vara­ríkis­saksóknari. Verjandi var Sveinn Snorrason hrl.‘‘ Þórður var þar með dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir voða­verkið þennan nýárs­morgun og játaði hann fyrir dómi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning