Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Öskraði á íslenskt par og sakaði það um gyðingahatur

„Um leið og hann var kominn á filmuna brosti ég og sagði „fuck Israel“ og svo „welcome to Iceland“.“

Rabbíninn Shmuley Boteach
Rabbín­inn Shmuley Boteach Boteach sak­aði Samúel og kær­ustu hans um gyð­inga­hatur Mynd: Instagram-skjáskot

Bandaríski rabbíninn og fjölmiðla­maðurinn Shmuley Boteach er enn á ferðalagi um Ísland ásamt syni sínum, hermanninum Mendy en hann þjónaði Ísraelsher bæði á Gaza og í Líbanon en Mannlíf sagði frá heimsókn feðganna á dögunum. Samkvæmt mynd­skeiðum sem hann hefur birt virðist ferðin meðal annars tengjast gerð heimildar­efnis.

Myndband sem Boteach birti á samfélags­miðlum sínum, er nú á dreifingu en þar sést hann öskra nær stans­laust á ungt íslenskt par á Akureyri og saka þau um gyðinga­hatur. Rabbíninn er einn þekktasti stuðnings­maður Ísraels og Ísraels­hers í Banda­ríkjunum.

Í mynd­bandinu sést rabbíninn veitast að parinu sem er á göngu í miðbæ Akureyrar. Boteach sakar manninn, Samúel Guðmundsson, um að hafa þóst vera aðdáandi hans þar sem hann var að taka upp myndband og síðan sagt „Fjandinn hirði Ísrael (Fuck Israel)“. Þessu játar Samúel. Rabbíninn sakar þá Samúel um gyðinga­hatur og hótar lögreglunni og bandaríska sendi­ráðinu á hann. Samúel heldur ró sinni allan tímann en harðneitar að hann hafi sagt nokkuð um gyðinga, heldur sé hann á móti Ísrael og þjóðar­morðinu á Gaza. Endurtekur hann orð sín ítrekað í mynd­skeiðinu: „Fuck Israel“.

Þó svo að Samúel haldi ró sinni er augljóst á mynd­bandinu að kærustu Samúels þykir afar óþægilegt að vera í mynd á meðan rabbíninn heyrist ítrekað hrópa á parið .

Í mynd­bandinu, sem er rúmlega átta mínútur að lengd, má heyra rabbínan afar æstan eins og áður hefur komið fram en í lok mynd­bandsins vísar Boteach til veru bandaríska hersins á Íslandi í síðari heims­styrjöldinni og segir Íslendinga eiga Bandaríkja­mönnum þakkir að færa fyrir að hafa verndað landið gegn nasistum.

Engir eftirmálar

Mannlíf heyrði í Samúel sem lýsti atvikinu á eftir­farandi hátt:

„Ég og kærasta mín vorum í fríi á Akureyri og vorum úti að labba eftir kvöld­matinn. Ég sé Shmuley fyrir algjöra tilviljun fyrir framan bar með IDF-liða syni sínum. Ég hafði nefnilega áður séð frétt frá ykkur að hann væri á landinu, þannig að ég var handviss um að þetta væri maðurinn. Ég tók kærustu mína afsíðis örstutt til að útskýra í stuttu máli það sem þessi maður stæði fyrir og væri ábyrgur fyrir. Ég sagði svo að ég myndi ekki geta lifað með sjálfum mér ef ég léti þetta ósagt og fór og talaði við hann. Ég tók upp myndband af fyrstu kynnunum þarna, hann sagðist vera í símanum við lögfræðing en samþykkti að vera með því ég sagðist vera aðdáandi. Um leið og hann var kominn á filmuna brosti ég og sagði „fuck Israel“ og svo „welcome to Iceland“. Eftir þetta elta þeir feðgar okkur upp um allar trissur og götur þarna, og það lágkúrulegasta er að þeir elta kærustu mína sem átti enga sök frekar en mig. Þeir settu strax orð í munn og ásökuðu mig meira að segja að hafa sett hand­legginn utan um hann, en eins og sést á mynd­bandinu kom ég aldrei við hann. Hann aftur á móti reyndi ítrekað að labba utan í mig þegar hann var að elta kærustu mína. Ég er alls ekki hissa á þessari hegðun þeirra, hef séð önnur myndbönd þar sem menn ósáttir með þjóðar­morðið á Gaza láta hann heyra það. Hann hótaði mér löggunni og öllu illu.“

Að sögn Samúels urðu engir eftir­málar á þessu enda hafi sonur rabbínans vilja fara og bætti við: „Ég hélt kúlinu allan tímann, sem var ábyggilega öfugt við það sem þeir vildu.“

Hér má sjá mynd­skeiðið sem rabbíninn birti:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum