Einn þekktasti stuðningsmaður Ísraelshers, rabbíninn Shmuley Boteach er á Íslandi ásamt syni sínum Mendy, sem barðist bæði á Gaza og í Líbanum í Ísraelsher.
Shmuley, sem er bandarískur rabbíni, höfundur og fjölmiðlamaður, hefur verið ötull stuðningsmaður Ísraelshers og stoltur Síonisti, hefur verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlum þar sem hann hefur varið framgang Ísraelshers á Gaza en sonur hans, sem er með honum á ÍSlandi, barðist þar eftir 7. október 2023, þegar Hamas-liðar réðust inní Ísrael.
Með honum á Íslandi er sonur hans, Mendy, annar þeirra sem er í hernum. Í myndbandi sem hann birti á Instagram ræða þeir feðgar við hollenskan hermann, sem ekki vill birtast í mynd. Þar talar rabbíninn um atvik í seinni heimsstyrjöldinni en við færsluna skrifar hann:
„Mögnuð fegurð, tign og undur Íslands. Við Bandaríkjamenn þurfum að snúa aftur til náttúrunnar.“
„Þá dásamar hann einnig son sinn og segir að hann hafi
þjónað á Gaza og í Líbanon af djörfung.“
Í öðru myndskeiði sem hann birti nýtur Shmuley lífsins í Bláa lóninu þar sem hann rifjar upp þegar hann kom fyrst til Íslands, áður en hún varð að þeirra ferðamannaparadís sem hún er nú. Við myndskeiðið skrifaði hann:
„ÍSLAND: Fylgist með mér næstu daga þegar við birtum heimildarmynd okkar um frjálslynd Evrópulönd sem eru að mestu andvíg Ísrael. Hvers vegna? Við skulum komast að því.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir