Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Shane MacGowan kominn heim eftir lífshættuleg veikindi: „Við erum innilega og eilíflega þakklát“

Söngvari The Pogues, Shane MacGowan er kom­inn heim eftir að hafa dvalið síð­ustu mán­uði á spítl­ana vegna sjald­gæfrar og lífs­hættu­legrar veiru.

Eig­in­kona goð­sagna­kennda írska söngv­ar­ans Shane MacGowan, til­kynnti á dög­unum að Shane hefði útskrif­ast af spít­ala í Dyflinni. Söngv­ar­inn, 65 ára, hefur verið á spít­ala síð­ustu mán­uði eftir að hafa verið greindur með veiru­heila­bólgu, sem er sjald­gæft og mögu­lega lífs­hættu­legt ástand sem veldur því að heil­inn bólgnar.

Síð­ast­liðið mið­viku­dags­kvöld, birti eig­in­kona Shane, írska blaða­konan Victoria Mary Clarke, ljós­mynd á X, af skæl­bros­andi Shane í sjúkra­rúmi með trefil um háls­inn og húfu. Við mynd­ina skrif­aði hún: „Shane er kom­inn af spít­ala! Við erum inni­lega og eilíf­lega þakk­lát öllum læknum og hjúkr­un­ar­fræð­ingum og starfs­fólki á St Vincent´s, það er best! Og sér­stakar þakkir til Tom Cragh og Brian Corscadden fyrir ykkar hjálp.“

MacGowen til­kynnti um grein­ing­una í mynd­bandi á sam­fé­lags­miðlum á nýárs­dag. Síðan hann var lagður inn á St. Vincent´s spít­al­ann í Dyflinni hefur eig­in­kona Shane verið dug­leg að birta upp­lýs­ingar um fram­gang mála til aðdá­enda hans, meðal ann­ars með ljós­myndum þar sem Shane er að heilsa vinum sínum. Ástandið var það slæmt á tíma­bili að hann var lagður inn á gjör­gæslu­deild. En sem sagt, karl­inn er kom­inn heim.

Shane hefur í gegnum árin farið afar illa með sig með gríð­ar­legri áfeng­is­drykkju og eit­ur­lyfja­notkun og vegna þess missti hann smá saman allar tenn­urnar. Árið 2015 fékk hann nýtt sett af tönnum en umbreyt­ingin var mynduð fyrir þátt­inn Shane MacGowan: A Wreck Reborn. Árið 2016 til­kynnti eig­in­kona hans að hann væri orð­inn edrú. Árið 2015 féll hann illa á leið úr upp­töku­veri og braut á sér mjaðma­grind­ina og hefur not­ast við hjóla­stól síðan. Frétt þessi er unnin upp úr frétt Independent.

Hér má sjá hans fræg­asta lag, af mörgum ansi góðum:

<div class=“sc-toncsa-0 hGaNfr“>

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027