Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

„Stúlkur sem hafa samfarir við útlendinga gera sér ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru“

Sumarið 1985 var ríkjandi ótti hér á landi um að stærstur hluti Íslendinga gæti smitast af alnæmi.

DV fjallaði um málið á sínum tíma og ræddi meðal annars við yfirlækni á Land­spítalanum; sá taldi mikla ógn steðja að:

„Mér þykir í sannleika sagt of lítið gert úr þeirri hættu er stafað gæti af alnæmi hér á landi. Menn verða að gera sér grein fyrir að mannkynið og þar með islenska þjóðin getur staðið frammi fyrir áður óþekktu ógnar­ástandi, hörmungum sem ekki verður séð fyrir endann á,“ sagði Þórður Harðarson, prófessor og yfir­læknir, við DV.

Hann taldi möguleika vera á því að stór hluti ungs fólks á Íslandi smitaðist:

„Fræðilega gætum við staðið frammi fyrir því að stór hluti ungs fólks væri smitaður af alnæmi eftir örfáa áratugi,“ sagði Þórður á þeim tíma.

Þegar þessi ótti var uppi hafði AIDS ekki verið greint í Íslendingi þótt mótefni hefði fundist í fjórum einstaklingum.

Í frétt hins lands­fræga blaða­manns Eiríks Jónssonar í DV er sagt að það væri einungis spurning um tíma hvenær sjúk­dómurinn bærist til Íslands með þessum skelfi­legu afleiðingum:

„Ég held að stúlkur sam hafa samfarir við útlendinga geri sér í 95 % tilfella ekki grein fyrir í hvaða hættu þær eru að stefna sjálfum sér,“ sagði Þórður.

Fram kom í greininni að ástandið væri einna verst í Danmörku:

„Ekki kann ég neina skýringu á því hvers vegna Danir hafa farið svona illa út úr þessu en vera má að frjáls­lyndi þeirra í ástamálum á undan­förnum áratugum valdi þar einhverju,“ sagði Þórður yfir­læknir, sem varaði sérstak­lega við sýktum vændis­konum sem gætu valdið ægilegu tjóni, „séu þær iðnar við störf sín.“

Því er lýst í greininni að uppi hafi verið raddir um að setja smitaða einstaklinga í einangrun strax og greining liggur fyrir. Þá var því velt upp hvort mögulegt væri að lögbinda notkun á smokkum til að hefta útbreiðslu veirunnar:

„Og hugsanlega ætti fólk alls ekki að hafa samfarir við aðila sem ekki hefur farið í blóðprufu.“

Hann var spurður um það hvort ekki væri ráðlegt að taka blóðprufu af allri þjóðinni og taka upp einhvers konar skráningu. Og þá hvort ekki ætti að setja merki í nafn­skírteini manna:

„Það getur komið að því að einhvers konar skráning verði nauðsynleg. Þetta er alvarlegra mál en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Stundum hef ég verið spurður að því hvort líkja mætti alnæmi við syfilis, sjúkdóm sem þótti ólæknandi í eina tíð. En þessi tvö fyrirbæri er ekki hægt að bera saman. Syfilis brennur út af sjálfu sér og hættir að smita á ákveðnu stigi. Það gerir alnæmi aftur á móti ekki. Hann smitar stöðugt og menn geta gengið með hann svo árum skiptir án þess að vita af því. Í því felst óhugnaðurinn,“ sagði hann.

Gíf­ur­legir for­dómar í garð sam­kyn­hneigðra voru alls­ráð­andi í heim­inum á 9. ára­tug síð­ustu aldar. Talað var um að Guð væri að refsa sam­kyn­hneigðum fyrir það eitt að vera þeir sjálfir.

Mikill ótti var ríkjandi fyrst eftir að fólk greindist með HIV. Rætt var um að skylda alla sýkta til að láta skrá sjúk­dóminn í skilríki sín.

Þeir sem ganga með veiruna í dag lifa flestir þokkalegu lífi. Sjúk­dómnum er haldið niðri með lyfjagjöf sem að vísu mun standa ævilangt, ef að líkum lætur. Lyfin gera það að verkum að veiran er ekki lengur í blóðinu og þeir því ekki smitandi. Þeir sem hafa greinst munu því geta lifað lengi og notið fullra lífsgæða. Hugmyndir um að skrásetja alla sýkta eru því fráleitar. Fólk sem tekur reglulega lyf og hefur ekki veiruna í blóðinu er nánast ósmitandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Meðal þeirra sem þar hafa búið eru Cher, Elton John, Lindsay Lohan og Courteney Cox.
Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri