Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

12 spor saumuð í andlit Torfa eftir líkamsárás í miðbænum: „Blóðið spýttist út um allt“

LA Café var staðsett á Laugavegi – Myndin tengist ekki fréttinni. –
LA Café var stað­sett á Lauga­vegi – Myndin teng­ist ekki frétt­inni. – Mynd: Wikipedia

Torfi Guð­munds­son varð fyrir árás árið 1995 en hann var ósáttur með vinnu­brögð lög­reglu eftir að ráð­ist var á hann á LA Café.

„Eftir sýn­ing­una var ég að ganga frá mínum hlutum inni í eld­húsi. Þá kom inn stúlka sem var í góðu skapi og vel drukkin. Hún fór að tala við mig og spurði hvort ég væri eig­and­inn á staðnum. Ég sagði svo ekki vera og sagði henni bara að fara fram að skemmta sér. Þá reidd­ist hún skyndi­lega, hellti úr glasi framan í mig, reyndi að sparka í pung­inn á mér og lamdi mig síðan með glas­inu beint í gagn­augað. Ég skarst illi­lega og blóðið spýtt­ist út um allt,“ sagði Torfi Geir­munds­son hár­greiðslu­meist­ari við DV um málið árið 1995.

Forsaga máls­ins er sú að Torfi var að halda prufu­sýn­ingu á kaffi­hús­inu og skemmti­staðnum LA Café en hann var að fara halda sýn­ingu í New York helg­ina á eftir. Tilefni þess voru verð­laun sem Torfi fékk sem hár­greiðslu­meist­ari. Konan sá þó að sér ein­hverjum dögum eftir árás­ina og baðst afsök­unar. Torfi var þó gíf­ur­lega ósáttur með vinnu­brögð lög­reglu­manna sem mættu til að rann­saka árás­ina.

„Framkomu lög­regl­unnar við fórn­ar­lömb þeirra sem verða fyrir árásum verður að gera að umtals­efni því ég lít á mig sem fórn­ar­lamb í þessu til­viki. En það var komið fram við mig sem saka­mann og ég sýndur almenn­ingi. Ég kom út bak­dyra­megin en tveir lög­reglu­menn leiddu mig upp á Laugaveg. Þar stóðu þeir með mig á gang­stétt fyrir framan LA Café í allt að hálf­tíma áður en ekið var með mig á slysa­deild. Á meðan foss­blæddi úr gagn­aug­anu,“ sagði Torfi og vildi hann að það færi fram sér­stök rann­sókn á þessu með það að leið­ar­ljósi að bæta sam­skipti lög­reglu við almenn­ing.

Guð­mundur Guð­jóns­son yfir­lög­reglu­þjónn gaf lítið fyrir þessi ummæli Torfa.

„Maðurinn fór sjálfur út bak­dyra­megin á meðan lög­reglu­menn­irnir voru inni á staðnum að safna upp­lýs­ingum. Þeir fóru síðan út aðal­dyra­megin og hittu þar mann­inn. Hann var aldrei tek­inn einum eða neinum tökum. Það eina sem þeir gerðu var að bjóð­ast til að aka honum á slysa­deild, sem hann þáði, og gerði engar athuga­semdir og lét síður en svo í ljós óánægju fyrr en eftir á í fjöl­miðlum. Til að geta veitt hinum slas­aða sem besta þjón­ustu og koma honum sem fyrst undir lækn­is­hendur hafði lög­reglan í frammi þá við­leitni að aka honum á slysa­deild. Það dregur úr álagi á sjúkra­flutn­inga­menn á mesta álags­tíma þeirra og minnkar þannig líkur á að þeir verði upp­teknir í smá­vægi­legum óhöppum þegar alvar­leg slys verða þar sem jafn­vel getur verið spurn­ing um líf og dauða. Það er ákaf­lega furðu­legt þegar lög­reglan er að sinna laga­legri skyldu sinni að fá síðan svona upp­á­komur í fjöl­miðlum og hót­anir um kæru. Lög­reglu­menn­irnir stóðu í alla staði rétt að mál­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni