Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Sigríður Björk lætur af embætti

Sigríður Björk fyrrverandi ríkislögreglustjóri
Sigríður Björk fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri Hefur verið gagn­rýnd fyrir stöf sín Mynd: Stjórnarráðið

Þorbjörg S. Gunnlaugs­dóttir dómsmála­ráðherra hefur orðið við beiðni Sigríðar Bjarkar Guðjóns­dóttur ríkis­lögreglu­stjóra um að láta af embætti en greint er frá þessu í tilkynningu frá yfir­völdum.

Þetta var niður­staða fundar þeirra beggja í gær.

„Þetta er farsæl niður­staða og rétt ákvörðun af hálfu Sigríðar Bjarkar. Það er mikilvægt að um lögregluna ríki friður og traust. Nú stöndum við frammi fyrir því verkefni að koma rekstri embættis ríkis­lögreglu­stjóra á réttan kjöl og halda áfram að efla lögregluna í landinu. Ég þakka Sigríði Björk fyrir störf sín innan lögreglunnar undan­farna áratugi,“ segir ráðherra.

Í kjölfarið mun ráðherra flytja Sigríði Björk í stöðu sérfræðings í aðgerðum gegn kynbundnu ofbeldi í dómsmála­ráðuneytinu.

„Ég hef lagt mikla áherslu á baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og þessi mála­flokkur er forgangsmál hjá mér og ríkis­stjórninni. Sigríður Björk hefur áratuga reynslu og þekkingu á þessu sviði sem mun því nýtast áfram.“

Grímur Hergeirsson settur ríkislögreglustjóri

Dómsmála­ráðherra hefur ákveðið að setja Grím Hergeirsson tíma­bundið í embætti ríkis­lögreglu­stjóra frá 14. nóvember nk. Grímur á 30 ára feril að baki og hóf störf hjá lögreglunni 1996. Hann hefur verið lögreglu­stjóri á Suður­landi síðan árið 2022. Embætti ríkis­lögreglu­stjóra verður auglýst á næstunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra