Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Sjóarinn: Varð undir pappírsrúllu og dó í höndum Brynjólfs

Að þessu sinni lagði Sjóarinn leið sína til Malmö í Svíþjóð og hitti þar fyrir skip­stjór­ann og heims­hornaflakk­ar­ann Brynjólf Sig­urðs­son. Brynjólfur, eða Binni, fædd­ist á Ísafirði en ólst upp í Grinda­vík.

Ferill Binna hefur gengið stór­slysa­laust fyrir sig að mestu en und­an­tekn­ingin varð þegar hann sigldi  á frakt­skipi fyrir sænskt félag þar sem verið var að flytja stærð­ar­innar rúllur af pappír. Þegar verið var að losa voru tveir menn í lest­inni sem höfðu það hlut­verk að ann­ast los­un­ina. Töluverð slag­síða var á skip­inu stjórn­borðs­megin en þrátt fyrir að þeir höfðu kallað til þeirra upp­lýs­ingar um slíkt los­uðu þeir samt með þeim hætti að rúll­urnar fóru að rúlla af stað. Einn mann­anna stóð ofan á rúll­unum þegar hreyf­ing komst á þær og sá þurfti því að stökkva á milli rúll­anna en svo fór að hann náði ekki yfir og fór á milli. Binni hljóp þá niður í lest til að vitja manns­ins. Þegar hann kom að var mað­ur­inn með­vit­und­ar­laus og svo fór að hann lést skömmu síðar í hönd­unum á Binna.

Hann lýsir því að í barna­skóla hafi bekkur hans verið spurður út í fram­tíð­ar­drauma sína og eftir að aðrir í bekknum höfðu lýst háleitum draumum sínum kom að honum og þá mun hann hafa sagt að kannski einn í bekknum myndi ná þessum tak­mörkum sínum og restin myndi enda á sjónum og því ætl­aði hann að verða skip­stjóri, sem svo gekk eftir.

Faðir hans lést er hann féll fyrir borð á Dís­ar­fell­inu sem var gríð­ar­legt áfall fyrir hann. Hann segir þó að þetta hafi síður en svo dregið úr honum þá löngun að verða sjó­maður, þvert á móti.

14 ára viðr­aði hann það við fóstra sinn að hann lang­aði til sjós og spurði hvort hann væri til í að tala við Pétur í Höfn, skip­stjóra á Hrafni Svein­bjarnar, og spyrja hann hvort hann gæti útvegað honum pláss á sum­ar­netum. Fóstri hans mun þá hafa svarað því svo að maður skyldi sækja um vinnu sjálfur. Hann bank­aði því uppá hjá Pétri sem lauk upp hurð­inni og spurði hann þá hvort hann væri að selja Morg­un­blaðið. Þegar Binni svo sagði honum að hann væri þarna til að sækja um pláss upp­skar hann hlát­ur­skast frá Pétri því hann var ekki hár í loft­inu en úr varð að hann sam­þykkti þetta og þar með var ekki aftur snúið.

Binni varð skip­stjóri skömmu eftir tví­tugt en flutti til Sví­þjóðar í kringum 1990. Hann hefur á ferli sínum stundað fisk­veiðar, frakt­flutn­inga og svo í seinni tíð hefur hann starfað sjálf­stætt sem skip­stjóri og meðal ann­ars ferjað stór­leik­ar­ann Tom Cruise í tengslum við gerð Mission Impossi­ble myndar.

Sjáðu við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027