Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Björgvin Þór minnist læriföður síns: „Boris var kennari af guðs náð“

Boris og Björgvin
Boris og Björgvin Mynd: Facebook

Björgvin Þór Björg­vins­son, fyrrum lands­liðs­maður í hand­bolta minn­ist læri­föður síns í nýrri færslu á Facebook.

Björgvin Þór, sem lék með Breiða­bliki, KA og Fram í meist­ara­flokki og lék 48 lands­leiki fyr­ir Ísland, skrif­aði fal­leg minn­ing­ar­orð um læri­föður sinn, hinn goð­sagna­kennda hand­bolta­þjálf­ara, Boris Bjarna Akbachev, sem lést á dög­unum, 89 ára að aldri.

Blessuð sé minn­ing hans.

Björgvin gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta færslu sína. Hana má lesa hér:

„Ein­stakur maður er nú fall­inn frá, Boris Bjarni Akbachev. Hann kom inn í líf mitt árið 1989 þegar ég var nýorð­inn 17. ára. Að fá slíkan þjálf­ara á þessum mót­un­ar­árum var ómet­an­legt. Ég var hluti af mjög sterkum 72 árg. Breiða­bliks í fót­bolta en Boris var ekki lengi að selja mér hug­mynd­ina að velja hand­bolt­ann.

Boris þjálf­aði m.fl. Breiða­bliks frá 1989-1992 og betri þjálf­ari vand­fund­inn, alla­vega vorum við yngri leik­menn­irnir him­in­lif­andi en þeir eldri voru ekki alltaf að átta sig hvað var í gangi. Ég man eftir viku æfinga­ferð á Laug­ar­vatn þar sem við æfðum þvisvar á dag!!Boris var kenn­ari af guðs náð og má segja að hann hafa byrjað á því fyrsta árið að kenna okkur Blika­strákum að kasta og grípa. Hring eftir hring hlupum við í send­inga­ræf­ingum i Digra­nes­inu, já góðar minn­ingar. Mikið lagði hann upp úr því að mæta vel á æfingar og æfa auka­lega. Einu sinni sleppti ég laug­ar­dagsæf­ingu því það var laufa­brauðs­dagur hjá fjöl­skyld­unni í Birki­hvamm­inum, sú mis­tök voru ekki gerð aftur.Eftir æfingar keyrði ég hann oft heim og þá fékk maður 15-30 mín spjall um hvernig bæta mætti eitt og annað inn á vell­inum en ekki síður hvernig íþrótta­maður ætti að hugsa og lifa líf­inu. Þessa visku tók maður með sér út í lífið og það var dýr­mætt.Það var vanda­mál að fá besta þjálf­ar­ann svona snemma á ferl­inum því allir sem á eftir komu voru dæmdir út frá læri­föður mínum. Síðar náði ég að end­ur­nýja kynnin við þann besta þegar hann var aðstoð­ar­þjálf­ari lands­liðs­ins þegar Þorbjörn Jensson þjálf­aði liðið.Eft­ir­far­andi saga lýsir þessum stóra karakter vel. Á mínu fyrsta ári í m.fl. spil­uðum við mjög sterkt lið Selfoss í 2. deild­inni. Eftir leik­inn var ég ansi mont­inn með mig eftir að hafa skoðað 8 mörk úr 9 skotum. En Boris var ekki eins ánægður og tók mig á teppið fyrir að hafa klikkað á þessu eina skoti og útskýrði hvað ég hefði gert rangt og ég hefði ein­fald­lega verið hepp­inn i hinum skot­unum. Það er alltaf hægt að gera betur.Ég vil votta Olgu og fjöl­skyldu Boris inni­legar sam­úð­ar­kveðjur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto