Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Rottugangur í Hlíðunum: „Rotta kom labbandi að mér. Kvikindið virtist ekki hrætt fyrir fimmaura“

Þessi rotta er pollróleg
Þessi rotta er poll­ró­leg

Í bak­sýn­is­spegl­inum í dag rifjum við upp gríð­ar­legan rottu­gang í Hlíðunum árið 1990. DV tók við­tal við íbúa þann 11.júlí árið 1990 en sá var virki­lega þreyttur á ástand­inu. „Ég lá í sól­baði á gras­flöt­inni við húsið í síð­ustu viku og vissi ekki fyrr en rotta kom labbandi að mér í róleg­heit­unum. Mér brá illa en kvik­indið virt­ist ekki hrætt fyrir fimmaura,“ sagði Guð­laugur Lárusson, íbúi við Miklu­braut 13. „Það er orðið mikið um rottur hér í kring og í hús­inu er þetta orðið svo slæmt að kon­urnar þora ekki í þvotta­húsið og því síður að láta börnin sofa úti í vögnum. Þessi fén­aður er við­bjóðs­legur og á ekki að sjást í nokk­urri borg þar sem yfir­völd hafa snefil af sóma­til­finn­ingu,“ sagði Guð­laugur sem var afar heitt í hamsi.

Þegar DV ræddi við Guðlaug var hann að enda við að hirða eina dauða rottu upp í þvotta­hús­inu. Þar hafði verið eitrað fyrir rott­unum og ein þeirra ruðst upp í rist­ina í kjöl­farið. Guðlaugi var ekki skemmt. Aðspurður hvort ekki væri eitrað reglu­lega á svæð­inu sagð­ist hann ekki halda það.

„Það virð­ist ekki vera. Ég hringdi í borg­ina og í fyrstu var mér bent á að laga ein­hverja rennu við húsið. Ég lét mér ekki segj­ast og um síðir kom maður loks­ins til að eitra. Það var þó eins og hann hefði varla tíma til að standa í þessu.“ Hann sagði rottu­gang­inn hafa auk­ist mikið í Hlíðunum. Hann sagð­ist hafa orðið var við rottu af og til þegar hann var búsettur á Snorra­braut í fimmtán ár, það hafi ekki verið neitt í lík­ingu við ósköpin í dag og vand­aði hann borg­ar­yf­ir­völdum ekki kveðj­urnar.

„Það er greini­legt að pen­ingar eru lagðir í aðrar fram­kvæmdir en að upp­ræta þennan við­bjóðs­lega fénað. Rott­urnar koma úr hol­ræs­unum og hita­veitu­stokk­unum og þetta eru engin smá­kvik­indi. Þessir háu herrar hjá borg­inni virð­ast flytja í nýju hverfin og skilja okkur eftir í þessum við­bjóði. Það líður að því að kvik­indin fara að ganga yfir mann hérna. Íbúarnir eru lang­þreyttir á þessu. Í smá­plássum úti á landi eru farnar her­ferðir gegn rottum en hér í höf­uð­borg­inni virð­ast rott­urnar sums staðar kom­ast upp með að fara í her­ferð gegn íbúum,“ sagði hann að lokum en síðan þá hafa rott­urnar látið sjá sig víða um borg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto