Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Ólafía þriggja barna móðir varð heimsmeistari í Spartan

Ólafía Kvar­an er fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem hrós­ar sigri á heims­meist­ara­móti í hindr­un­ar- og þrek­hlaup­inu Spart­an Race. Ólafía er heims­meist­ari í sín­um ald­urs­flokki en hlaupið fór fram í Squaw Valley í Lake Tahoe í Kali­forn­íu í haust.

|||
|||

Spart­an Race er hindr­un­ar­hlaup þar sem kepp­end­ur tak­ast á við ým­iss kon­ar hindr­an­ir á hlaupa­leið­inni, sem er ut­an­vega, og oft með tölu­verðri hækk­un. Íþrótt­in nýt­ur gíf­ur­legra vin­sælda í Banda­ríkj­un­um og kepp­end­um fer jafn­framt fjölg­andi í Evr­ópu og Asíu, en keppt er í grein­inni í um það bil 40 lönd­um í heim­in­um.

Ólafía í Spartan

Ólafía er 49 ára, þriggja barna móðir, en hún leidd­ist út í Spart­an-hlaup af al­gjörri til­vilj­un. Litl­um hópi frá Íslandi var boðið að taka þátt á heims­meist­ara­mót­inu í liða­keppni í Spart­an-hlaupi fyr­ir tveim­ur árum. „Mér fannst þetta svo gam­an og ég hugs­aði að ég yrði að prófa þetta aft­ur,“ seg­ir Ólafía, sem hef­ur nú öðl­ast þjálf­ara­rétt­indi í Spart­an-hlaup­um og hef­ur haldið Spart­an-nám­skeið hér á landi sem end­aði með hóp­ferð í Spart­an-hlaup er­lend­is.

Ólafía í keppn­inni

Bak­grunn­ur Ólafíu er meðal ann­ars í bootcamp sem hún hef­ur stundað í rúm­an ára­tug en hún er eini Íslend­ing­ur­inn sem hef­ur tekið þátt í heims­meist­ara­mót­inu í Spart­an-hlaupi og hún set­ur markið hátt. „Auðvitað ætla ég að gera eitt­hvað meira og næsta sem er í kort­un­um er að reyna að smita fleiri af þessu. Næsta sem er í bíg­erð er að setja sam­an aðra hóp­ferð í Spart­an-hlaup í vor. Leiðin á heims­meist­ara­mótið er löng og ströng, að minnsta kosti tvö úr­töku­mót, en Ólafía er sann­færð að fleiri Íslend­ing­ar muni ná langt í heimi hindr­un­ar­hlaupa á næstu árum.

Ólafía með verð­launin

Ólafía er ein af þeim sem talar á fyr­ir­lestra­deg­inum Hamingja og árangur, á sunnu­dag­inn 10. jan­úar í Hörpu. Þar mun íslenskt afreks­fólk á heims­mæli­kvarða ræða leið sína að árangri, ásamt fag­fólki í jafn­væg­is­list­inni um lífið. Meðal þeirra sem deila reynslu sinni verða þau Margrét Lára Við­ars­dóttir, Guðni Gunn­ars­son, Elísabet Mar­geirs­dóttir, Vilborg Arna Giss­ura­dóttir, Sölvi Tryggva­son, Matti Óswald, og Ólafía, ásamt stuttum inn­leggjum frá Björgvin Pál Gúst­avs­syni hand­bolta manni og John Snorra Sig­ur­jóns­syni fjalla­manni og ofur­huga sem eru erlendis en ávarpa gesti í gegnum netið frá vett­vangi.

Sjá einnig: Slys­að­ist á heims­meist­ara­mót

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra