Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Chili con carne: Áttu mikið hakk í fyrsti – hér er hugmynd að rétti

Chili con carne er vin­sæll réttur víða um heim. Í Ameríku eru til chili con carne aðdá­enda­klúbbar sem hafa það eitt að mark­miði að safna upp­skriftum að rétt­inum, elda hann, smakka og njóta. Til eru ýmsar útgáfur af honum, ýmist notað nauta­hakk, nauta­kjöts­bitar eða jafn­vel kjúklingur. Nánast alltaf er notuð reykt paprika en það er einmitt hún sem gefur rétt­inum sitt ein­staka bragð.

Chili con carne

fyrir 4

Reykta paprikan gerir þennan góm­sæta hakk­rétt sér­stakan og góm­sætan. Súkkulaðið ýtir undir reyk­bragðið og gerir það enn meira spenn­nandi, ráð­legt er að setja hluta af súkkulað­inu fyrst og smakka sig svo áfram.

2-3 msk. olía
1 laukur, saxaður
2-3 hvít­lauks­geirar, saxaðir
1 rauður chili-aldin, saxaður
600 g gæða nauta­hakk
1 kúfuð tsk. kumm­in­duft
1 kúfuð tsk. reykt paprika (smoked
paprika, fæst frá Potta­göldrum)
1 dós góðir saxaðir tómatar (nota
tómata og safa)
1 msk. tómat­mauk
1 dl rauð­vín (má vera aðeins meira eða
um 1-2 dl)
1 dl vatn
1 ten­ingur nauta­kraftur
1 dós nýrna­baunir, safi sigtaður frá
20-30 g súkkulaði 85% (kannski
minna, eftir smekk)
salt og nýmal­aður pipar
hand­fylli stein­selja, söxuð eða
kórí­ander

Rétt­ur­inn und­ir­bú­inn. Mynd/Ernir Eyj­ólfs­son

Steikið lauk í olíu við vægan hita þar til lauk­ur­inn fer að verða glær. Bætið hvít­lauk og chilialdin í síð­ustu mín­út­urnar. Bætið nauta­hakki í pott­inn og steikið með lauknum. Setjið krydd, kummin og papriku út í og steikið með í 1-2 mín.

Bætið tómötum, tómat­mauki, rauð­víni, vatni og nauta­ten­ingi í pott­inn og hrærið saman við. Látið þetta malla við vægan hita undir loki í 40-50 mín. Bætið nýrna­baunum saman við í lok suðu­tím­ans, þær eru soðnar en þurfa að hitna vel í gegn. Bætið súkkulaði út í og látið bráðna saman við. Bragð­bætið með salti og pipar og bætið e.t.v. chili-flögum í ef ykkur finnst rétt­ur­inn mega vera sterk­ari.

Bætið nauta­hakki í pott­inn og steikið með lauknum. Setjið krydd, kummin og papriku út í og steikið með í 1-2 mín. Mynd/Ernir Eyj­ólfs­son

Sáldrið stein­selju eða kórí­ander yfir. Berið Chili con carne fram með maís­flögum, (best að nota án bragð­efna), og sýrðum rjóma. Gott er að hita maís­flög­urnar í ofni smá­stund áður en þær eru bornar fram. Ef afgangur er af kjöt­rétt­inum er gott að drýgja hann dag­inn eftir með því að baka kart­öflu­bita, gjarnan blöndu af sætum kart­öflum og hvítum og bera fram með afgangnum af rétti­unum.

Veltið þeim upp úr olíu, setjið í 180°C heitan ofn í 30-40 mín. Steikið lauk og ferska papriku í smá­vegis af olíu og hellið yfir kart­öfl­urnar þegar þær eru til­búnar.

Bætið súkkulaði út í og látið bráðna saman við. Mynd/Ernir Eyj­ólfs­son

Umsjón/Sigríður Björk Braga­dóttir og Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir/Ernir Eyj­ólfs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni