Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Engin tilkynning hefur borist Hopp um líkamsárás leigubílstjóra

„Tekið verður á málinu á viðeigandi hátt þegar þær berast frá yfir­völdum“

Garðabær
Garðabær Leigu­bíl­stjóri réð­ist á karl­mann með hnefa­höggum í gær. Mynd: Garðabær

Samkvæmt svörum frá Hopp leigu­bílum segist fyrir­tækið ekki bera ábyrgð á leigu­bílstjórum sem þjónustar farþega í gegnum fyrir­tækið. Séu lögin skoðuð kemur í ljós að Samgöngu­stofa ber ábyrgðina.

Í gær sagði Mannlíf frá því að karlmaður hafi verið fluttur á sjúkrahús eftir líkams­árás leigubíls­stjóra en samkvæmt heimildum Mannlífs er bílstjórinn skráður sem leigu­bílstjóri hjá Hopp og hjá sjálfum sér

Mannlíf sendi fyrir­spurnir á Hopp leigubíla og spurðu eftir­farandi spurninga:

  1. Hvernig mun Hopp bregðast við komi í ljós að maðurinn er skráður á stöðina?
  2. Hversu margir bílstjórar hafa misst leyfi til að starfa hjá Hopp síðan stöðin var stofnuð?

Í svari sem barst frá Hopp kemur fram að fyrir­tækinu hafi ekki borist neinar upplýsingar um atvikið en að „tekið verður á málinu á viðeigandi hátt þegar þær berast frá yfir­völdum“.

Hvað varðar svar við seinni spurninguna, þurfti Mannlíf að ganga aðeins eftir svari en í fyrstu barst það svar að allir leigu­bílstjórar hér á landi séu sjálfstætt starfandi verktakar og fái miðlað til sín ferðum frá þeim leigu­bílastöðvum sem þeir eru skráðir á og að allir leigubíls­stjórar séu rekstrar­leyfishafar sem keyri á eigin leyfi frá Samgöngu­stofu.

Hér má lesa svarið í heild:

„Allir leigu­bílstjórar á Íslandi eru sjálfstætt starfandi verktakar og fá ferðum miðlað til sín frá þeim stöðvum sem þeir eru skráðir á eða afla sér þeirra sjálfstætt. Enginn leigu­bílstjóri keyrir á vegum Hopp nema þegar þeir fá ferð í gegnum Hopp appið. Allir leigu­bílstjórar eru rekstar­leyfishafar og keyra á eigin leyfi frá Samgöngu­stofu. Missi bílstjóri leyfi frá Samgöngu­stofu dettur hann sjálfkraf út úr Hopp appinu. 

Hopp gerir strangar gæða­kröfur á þá bílstjóra sem fá ferðir í gegnum Hopp appið, þar er ekki hægt að breyta verði því allar greiðsur fara í gegnum Hopp appið ásamt því að rekjanleiki gagna er í appinu, fyrir bílstjórann, notandann og Hopp.“

Mannlíf hafði aftur samband við Hopp leigubíla til að ýta eftir svari við hinni spurningunni, hversu margir bílstjórar hefðu misst leyfi til að starfa hjá Hopp eftir að fyrir­tækið var stofnað.

Í svarinu sem barst kemur fram að erfitt sé að svara spurningu sem í raun eigi ekki við fyrir­tækið, þar sem bílstjórar keyri allir á eigin rekstrar­leyfum.

„Það er erfitt að svara spurningu sem á í raun ekki við okkur, Hopp er ekki leyfis­hafi né eru bílstjórar að keyra á leyfi Hopp þeir keyra á sínum rekstar­leyfum.“

Svarið kom síðan en þar kemur fram að engin tilkynning hafi borist fyrir­tækinu um alvarleg atvik og hefur því „engum reikningum verið lokað vegna saknæmrar háttsemi bílstjóra í Hopp ferð“.

Hér má lesa seinni helming svarsins:

„Hér reynum við að svara spurningunni þinni:

Við ítrekum að bílstjórar eru sjálf­stæðir verktakar með leyfi hjá Samgöngu­stofu. Sé leyfi bílstjóra ekki lengur gilt, af hvaða ástæðu sem kann að búa að baki, er það Samgöngu­stofa sem aftur­kallar leyfi viðkomandi. Það er því réttast að hafa samband við Samgöngu­stofu til að læra meira um leyfismál bílstjóra. Hopp hefur ekki fengið neina tilkynningu um alvarleg atvik frá eftirlits­aðilum eða öðrum stjórn­völdum og engum reikningum hefur verið lokað vegna saknæmrar háttsemi bílstóra í Hopp ferð.“

Lögin skýr

Séu lög um leigubíla­rekstur skoðaðar má sjá að Hopp hefur rétt fyrir sér. Samgöngu­stofa ber ábyrgð á leyfis­veitingum og sviptingum leigu­bílstjóra, samkvæmt lögum um rekstur leigubíla. Eins og sjá má í 16. grein þriðja kafla um rekstur leigu­bifreiða, er Samgöngu­stofu heimilt að svipta leyfis­hafa leyfi þar til endanleg ákvörðun hefur verið tekin í málinu, hafi leigu­bílstjórinn sannanlega gerst sekur um vítaverða háttsemi.

16. gr.:Séu ríkar ástæður til að ætla að skilyrði fyrir sviptingu leyfis séu fyrir hendi og að töf á sviptingu geti haft almanna­hættu í för með sér, svo sem ef leyfis­hafi hefur sannanlega gerst sekur um vítavert hátterni og telja verður varhuga­vert að hann njóti leyfis áfram, er Samgöngu­stofu heimilt að svipta leyfis­hafa leyfi þegar í stað til bráða­birgða þar til endanleg ákvörðun í málinu hefur verið tekin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra