Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Kristinn Erling Jónsson: „Bjargið okkur, bjargið okkur“

„Ég verð nú að segja frá því að mitt mesta lán eftir að ég byrjaði með Víði þá lenti ég í því að bjarga þremur mönnum úr sjávar­háska. Það var mjög sérstakt. Við vorum úti í Hólakanti sem var um tveggja til þriggja kortéra stím frá Sandgerði með línuna og það spáði illa og byrjaði að ganga upp í vestan leiðindi. Þegar við vorum að draga síðasta bjóðið þá kom það fjórfalt þannig að við vorum miklu fljótari en ella að draga. Við kláruðum að draga og svo setti ég stefnuna á land. Hefðin var sú að skip­stjórinn á línu­bátunum stóð á útstími og stýri­maðurinn á landstími,“ segir Kristinn Erling Jónsson í viðtali við Reyni Traustason.

Eini mögu­leik­inn til að bjarga mönn­unum var að leggja að stefn­inu.

„Þegar við vorum búnir að sigla í um tvo tíma þá kom stýri­maðurinn og spurði hvort það ætti að vera bauja þarna. Ég sagði „nei, það á ekki að vera“. Ég sagði „fylgstu vel með hvað þetta er“. Hann kom aftur eftir stutta stund og sagði að sér fyndist þetta vera mastur. Ljós í mastri. Ég stökk fram og við nálguðumst þetta og ég sló nátt­úrlega af. Þá heyrðum við öskrað „bjargið okkur, bjargið okkur“. Þarna var komið skíta­veður, sjö átta vindstig. Þá voru nú góð ráð dýr .Við höfðum ekki neinn bát til að setja út og eini mögu­leikinn til að bjarga mönnunum var að leggja að stefninu; báturinn flaut bara á lúkarnum.“

Og stefnið upp úr.

Ef það hefði ekki heppn­ast hefði ég getað stein­drepið þá.

„Eini mögu­leikinn til að bjarga og ná til mannanna var að reyna að leggja að stefninu en það var nátt­úrlega mikil áhætta. Ef það hefði ekki heppnast hefði ég getað stein­drepið þá. En fyrir einhverja guðs lukku þá heppnaðist það og við náðum þeim inn á dekk. Þeir voru þrír á. Þegar síðasti maðurinn var kominn á dekk þá stökk ég upp á bátapall til að tékka á hvar þetta flak væri svo ég fengi nú ekki skrúfuna. Hann var bara horfinn.

Það ömurlegasta í þessu var að þegar hann fékk brotið á sig þessi bátur og lagðist þá stökk skip­stjórinn upp á stýrishús og losaði lífbátinn og losaði fanga­línuna líka; henti bátnum til þeirra sem voru fram á. Þeir náðu honum ekki þannig að það blasti ekkert við þeim annað en bara dauðinn.“

Þá komst þú.

„Þá kom ég.“

Þetta er magnað.

„Þetta er magnað. Þetta er stærsti róður sem ég hef nokkurn tímann fengið.“

Er nokkuð til betra en akkúrat þetta?

„Nei, ekkert.“

Voruð þið heiðraðir fyrir vikið?

„Já, það var gert á sjómanna­daginn í Sandgerði.“

Þetta er mikil gæfa.

„Þetta er ólýsanleg gæfa.“

Fórst í sjóslysi

Kristinn Erling Jónsson er sjómanns­sonur.

„Pabbi heitinn var sjómaður, Jón Björgvin Sveinsson, og var einn af þeim sem drukknuðu með Rafnkeli 1960. Þetta var 4. janúar og ég var á níunda ári.“

Kristinn segist hafa verið mikið hjá ömmu sinni í Sandgerði og hafði móðir hans farið um morguninn með rútu til Reykja­víkur, langt gengin með þriðja barn þeirra hjóna. Systir Kristins átti afmæli þennan dag.

Þegar útgerð­ar­mað­ur­inn og prest­ur­inn komu til að til­kynna að báts­ins væri saknað.

„Mamma heyrði menn fyrir aftan sig í rútunni tala um að líklega hafi Rafnkell farist. Um leið og hún kom til Reykja­víkur tók hún leigubíl á BSÍ og beint suður eftir. Hún var rétt komin í Sandgerði aftur þegar útgerðar­maðurinn og presturinn komu til að tilkynna að bátsins væri saknað. Þetta var nú frekar ömurlegt.“

Móðir og amma Kristins sögðu honum síðan tíðindin. Hann er spurður hvernig hann hafi brugðist við.

„Ég man það ekki þannig. Allavega þagði ég og beið. Vonaði alltaf að hann kæmi aftur. Það var búið að vera vesen með rafmagnið í bátnum og voru einhverjar getgátur um að hann hefði farið inn til Hafnar­fjarðar til viðgerðar. En svo þegar leið á daginn kom í ljós að það var ekki. Þetta var fyrsti línu­róðurinn á vertíðinni.“

Sex manns fórust með bátnum.

Bara krakki

Það kom ekkert annað til greina en að fara á sjóinn.

„Ég var á bryggjunni öllum stundum.“

Kristinn fór sinn fyrsta túr sem launþegi í maí árið 1964. Báturinn hét Ingólfur GK.

„Skip­stjórinn sem átti hann í Sandgerði, Bragi Björnsson, var mikill öðlings­maður. Hann féllst á að taka mig um borð og annan strák líka, son vélstjórans. Móður­bróður minn var stýri­maður á bátnum.“

Kristinn varð kokkur um borð.

Ég varð 13 ára tveimur vikum eftir að við fórum af stað.

„Jú, það blessaðist. Auðvitað fékk maður hjálp; það segir sig alveg sjálft. Ég varð 13 ára tveimur vikum eftir að við fórum af stað.“

Kristinn segist hafa farið í einn vetur í skóla eftir þetta áður en hann fór svo í Stýrimanna­skólann; hann var ekki orðinn 19 ára þegar hann útskrifaðist þaðan árið 1970. Hvað var fyrsta plássið eftir það?

„Það var á báti í Sandgerði sem hét Álaborg sem var 100 tonna austur-þýskur stálbátur. Það var virkilega gott pláss og besta pláss sem maður gat fengið í Sandgerði þá. Það var mikil gæfa að fá stýrimanna­pláss þar.

Við vorum á trolli yfir sumarið og svo á netum nátt­úrlega á vertíðinni.“

Svo var Álaborgin seld.

„Skip­stjórinn sem var með Álaborgina tók Straumnesið ÍS. Það var annar svona 100 tonna bátur og ég fór með honum þangað.“ Straumnesið var gert út frá Hafnar­firði.

Kristinn ók í vertíðarlok eitt vorkvöldið til Reykja­víkur og niður á togara­bryggju.

„Þá hafði Siglfirðingur verið að landa þar. Ég þekkti stýri­manninn um borð úr Stýrimanna­skólanum.“ Úr varð að hann bauð Kristni pláss um borð. Honum var síðar boðið að verða fyrsti stýri­maður á Siglfirðingi sem var fyrsti skut­togari Íslendinga, rúm 200 tonn. Kristinn var á Siglfirðingi í eitt ár og þar fékk hann tækifæri að leysa af sem skip­stjóri.

„Auðvitað fannst manni það upphefð að manni skyldi vera treyst fyrir þessu.“

Siglfirðingur var síðan seldur og þá réð Kristinn sig sem annan stýrimann á Guðbjart Kristján. Þar var hann í tæpt ár.

„Þá flutti ég suður og tók við skip­stjórn á Víði II.“

Því fræga aflaskipi.

„Já.“

Þessa fyrstu ver­tíð vorum við hæsti bát­ur­inn á Suð­ur­nesjum.

Það hefur nú verið eitthvað.

„Já, já, þetta var góður bátur og við rerum á línu. Og þessa fyrstu vertíð vorum við hæsti báturinn á Suðurnesjum.“

Og ekki gamall skip­stjórinn.

„Nei, hann var bara krakki. En þetta gekk mjög vel.“

Kristinn var einmitt á Víði þegar mönnunum var bjargað úr sjónum sem þegar hefur verið sagt frá. Og Kristinn segist muna hverja mínútu frá þeirri björgun.

Þetta mun ég aldrei fyrirgefa

Kristinn fór til Miðness í Sandgerði sem seinna rann inn í HB. Og rann svo inn í Granda.

Tíminn leið og í ársbyrjun 1977 varð Kristinn skip­stjóri á Ólafi Jónssyni, 25 ára gamall.

„Það gekk alltaf vel á Ólafi. Auðvitað gat verið misjafnt frá túr til túrs; það er bara eins og gengur. En yfir höfuð gekk mjög vel á honum.“

Varstu hávær?

„Já, já.“

Þú lést menn alveg heyra það á dekkinu.

„Já, maður gerði það. Auðvitað oft að tilefnis­lausu. Maður hefði betur þagað. Það er bara eins og það er. Það voru margir menn sem voru mjög lengi með mér þannig að það hafa greini­lega margir fyrir­gefið mér.“

Það sat ekkert í þeim.

„Nei, stýri­maðurinn var með mér í 16 ár.“

Ef maður þarf að kynna sig segir maður Kiddi á Ólafi Jónssyni.

Gekk þetta bara snuðrulaust? Og þú varst alsæll á Ólafi Jónssyni. Þú ert yfirleitt kenndur við hann.

„Ef maður þarf að kynna sig segir maður Kiddi á Ólafi Jónssyni,“ segir Kristinn sem var í 21 ár karlinn í brúnni.

Svo var það sameiningin við Akranes. Hvernig gekk það?

„Það voru bara svik á svik ofan. Það stóð ekki steinn yfir steini. Þetta var í lok árs 1996 en þá voru áhafnirnar á Ólafi Jónssyni og Sveini Jónssyni boðaðar á fund uppi á Akranesi.“

Miðnes í Sandgerði átti Ólaf Jónsson og það var Haraldur Böðvarsson sem var að taka yfir.

„Á þessum fundi var verið að kynna þetta og þá spurði einn áhafnar­meðlimur á Sveini Jónssyni hvort þetta yrði ekki eins og aðrir samningar; þetta myndi enda allt uppi á Skaga og allt yrði bara gleymt og grafið í Sandgerði. Þá var hann áminntur af framkvæmda­stjóra HB að menn ættu ekki að vera með svona dylgjur og kjaftæði; það stæði ekki til að minnka neina starfsemi í Sandgerði heldur ætti að efla hana. Hvað gerðist? Þegar við komum til löndunar 22. desember 1977 þá komu Rússar um borð að skoða skipið,“ segir Kristinn og bætir við að þeir hafi verið að kaupa skipið.

Þetta var einu ári eftir sameininguna.

Og þar með voru menn orðnir atvinnu­lausir eins og hann spáði drengurinn á Sveini Jónssyni.

„Já, hann var ekkert að fara með fleipur. Þetta var hárrétt.“

Þetta var nátt­úr­lega ömur­legt.

Hvernig varð þér við? Hvernig var að upplifa þetta?

„Þetta var nátt­úrlega ömurlegt. Ég var búinn að vera með skipið frá upphafi og búinn að fara með hann í gegnum breytingar í Póllandi. Hann var lengdur og endur­byggður. Hann var í mjög góðu standi, Ólafur.“

Þá var markmiðið að þurrka upp allan kvóta í Sandgerði og fara með hann?

„Já, þeir gerðu það. Þeir fóru með úr Sandgerði rúm 5000 þorsk­ígildi.“

Ertu reiður út af þessu?

„Já, þetta mun ég aldrei fyrirgefa.“

Að átta sig

Kristni bauðst til að fara á önnur skip eftir þetta en hann hafði ekki áhuga á því. Hann segist hafa farið að bardúsa í fisk­vinnslu og rak hann sitt eigið fyrirtæki.

„Ég byrjaði á því 1998 strax eftir að ég hætti á Ólafi og rak það þangað til ég fór til Afríku. Þegar ég kom frá Afríku 2005 fór ég að vinna hjá flugmála­stjórn við eftirlit á flug­brautunum.“

Kvóta­kerfið átti ekki við mig.

Þú varst alveg búinn að fá nóg af sjónum þá.

„Já, kvóta­kerfið átti ekki við mig.“

Þú áttir erfitt með að taka við svona fyrir­skipunum.

„Já, þetta var ekki fyrir mig. Þetta var ekki ég. Mér leiddist þetta mjög.“

Kristinn réð sig til Súðavíkur í tvö ár til að stýra þar harðfisk­vinnslu en árin urðu fjögur og hann er nýhættur.

Svo ertu að fara þangað á morgun.

„Að tína ber.“

Afla­skip­stjórinn sem tíndi ber.

„Já.“

Er það ekki bara eins skemmtilegt og að veiða karfa?

„Jú, jú, það er bara mjög gaman. Og yndislegt að vera í Súðavík. Það er staður sem ég myndi vilja eyða ellinni á.“

Er ekki tækifæri til þess?

„Jú, við höfum hús þarna,“ segir Kristinn sem stundar golf og syndir á morgnana.

Það er um að gera að fóta sig í tilverunni.

„Maður er bara að átta sig á hlutunum. Maður hefur alltaf verið í hellings aksjón og svo allt í einu þá er bara ekki neitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning