Verslunarkeðjan Flying Tiger Copenhagen hefur innkallað leikfangasílófón vegna hættu á að smáir hlutir losni af því og valdi börnum köfnunarhættu.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) greinir frá innkölluninni eftir að tilkynning barst í gegnum evrópska viðvörunarkerfið Safety Gate.
Um er að ræða sílófón með vörunúmerið 3033045. Pinnar sem halda járnstöngum hljóðfærisins á sínum stað geta losnað og skapað hættu fyrir ung börn.

Innköllunin nær til allra framleiðslulota vörunnar, sem hefur verið til sölu hjá Flying Tiger Copenhagen frá október 2023.
HMS hvetur alla sem eiga leikfangið til að hætta notkun þess tafarlaust og skila því í næstu verslun Flying Tiger Copenhagen. Kaupverðið verður endurgreitt.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir