Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Hilmar hafnar því að SSF hafi boðið sátt: Krefst 75 milljóna í bætur vegna eineltis og ofbeldis

Hilmar Vilberg Gylfason
Hilmar Vilberg Gylfason Mynd: Aðsend

Fyrrum fjármála­stjóri Samtaka starfs­manna fjármála­fyrirtækja, Hilmar Vilberg Gylfason gaf frá sér yfir­lýsingu í gær þar sem hann harðneitar að félagið hafi boðið honum sátt eftir kvörtun hans um einelti og ofbeldi yfirmanna hans. Svarar Hilmar þannig yfir­lýsingu félagsins sem kom fram í gær.

Hilmar hefur nú kært SSF og krefst sjötíu og fimm milljóna króna í bætur frá SSF eftir að honum var vikið úr starfi eftir að hann kvartaði undan lang­varandi einelti og ofbeldi af hendi yfirmanna sinna. Vísir sagði frá málinu í gær.

Í fyrradag sagðist lögmaður SSF að samtökin hefðu gert tilraun til sátta við Hilmar en án árangurs. Þá telji þau sig hafa gert upp við hann með sanngirni að leiðar­ljósi.

Í yfir­lýsingu Hilmars sem hann sendi frá sér í gær, segir hann það ósannindi að SSF hafi boðið sér sátt í málinu.

„Þessi meinta sátt fólst í því að ég myndi hætta störfum hjá stéttar­félaginu og ekki yrði gerði nein úttekt á umkvörtunum mínum. Voru mér settir þeir afar­kostir að annað hvort myndi ég skrifa undir starfsloka­samning eða að mér yrði sagt upp störfum,“ segir í yfir­lýsingunni.

Þá fullyrðir hann að þetta hafi gerst eftir að SFF hafi dregið sig án fyrirvara út úr framkvæmd á lögbundinni úttekt á vinnu­ástæðum, einelti og ofbeldi.

Segir Hilmar að hann hafi fengið í kjölfarið sendan einhliða starfsloka­samning sem hafi falið í sér að hann láti undan kröfu um greidda yfirvinnu, stærstan hluta af uppsöfnuðu orlofi og í þokkabót að hann greiddi sjálfur stóran hluta lögfræði­kostnaðar en stjórn félagsins hafði áður lofað að greiða þann kostnað. Þá hafi einnig verið skilyrði í samningnum þess efnis að hann mætti ekki tjá sig um innihald samningsins né aðdrag­anda starfs­lokanna.

„Í stuttu máli var þessi tillaga að starfsloka­samningi svo fjarstæðu­kennd að ekki nokkurt stéttar­félag á landinu hefði ráðlagt félags­manni sínum að taka honum,“ segir í yfir­lýsingu Hilmars.

Stjórnin hunsaði gagn­tilboði Hilmars og sagði honum síðan upp fyrirvara­laust í miðju veikinda­leyfi.

„Vil ég sérstak­lega taka fram að SSF hefur hafnað því að samskipti varðandi þetta séu lögð fyrir dóminn þrátt fyrir beiðni mína þar um. Og einnig alfarið hunsað beiðni mína um að fundar­gerðir stjórnar stéttar­félagsins þar sem fjallað var um mín málefni verði lagðar fram í málinu. Það er því augljóst að SSF telur þessi gögn og þar með ákvarðanir sínar í mínum málefnum ekki þola dags­ljósið,“ segir í yfir­lýsingunni.

Persónu­vernd hefur úrskurðað að SSF hafi brotið á Hilmari í þremur málum og hefur þrjú önnur mál til skoðunar.

Ekki náðist í Friðbert Traustason, framkvæmdar­stjóra SSF, við vinnslu þessarar fréttar.

Mannlíf hefur undir höndum gögn tengd málinu og mun fjalla nánar um það á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu